Fotbolti.net
12.03.19 - 12:42
Elvar Geir Magnússon

„Hræðsla við að taka umræðuna um veðmálaauglýsingar"

Jóhann Már Helgason.

Jóhann Már Helgason.

Canon

Mynd: Fótbolti.net/Samsett

Í síðasta þætti <a href="http://www.ruv.is/sjonvarp/spila/25256/25256?ep=7grgma" target="_blank">Sportrásarinnar á Rás 2</a> var umræða um fjármál í íslenskum fótbolta. Þar voru auglýsingar veðmálafyrirtækja meðal umræðuefna.

Mörg íslensk félög eru að glíma við fjárhagsvandamál. Erlend veðmálafyrirtæki vilja auglýsa fyrir umtalsverðar fjárhæðir en mega það ekki samkvæmt lögum.
„Þetta er stanslaus umræða. Það eru lög varðandi áfengisauglýsingar en það hefur minna reynt á þetta varðandi veðmálafyrirtækin. Þau hafa verið að ryðja sér til rúms hér á Íslandi og manni finnst þessi heimur vera að stækka mjög hratt," segir Jóhann Már Helgason, fyrrum framkvæmdastjóri hjá Aftureldingu og Val.

„Þetta er rosalega heit kartafla. Ef maður tekur eins og Val, þar sem ég var að vinna, þar er fullt af börnum allan daginn og maður hugsar 'Viltu vera með veðmálaauglýsingu“framan á búninngnum?' – En þegar þú tekur þessa hugsun lengra þá eru þarna fyrirtæki sem eru að græða gríðarlega fjárhæðir á íslenskum fótbolta. Það er veðjað á allar deildir og niður í yngri flokka. Væri ekki eðlilegt að íþróttahreyfingin fengi einhvern bita af þessari köku í formi styrkja á móti?"

„Ég held að þarna séu gríðarlegar tekjur fyrir íþróttafélögin sem er hægt að sækja. Ég veit það fyrir víst að þessi fyrirtæki eru tilbúin til að styrkja. Þetta er umræða sem þarf að fara fram á stórum og breiðum vettvangi til að ná sátt um. Það er hræðsla við að taka umræðuna. Real Madrid, stærsta félag í heimi, hefur verið með veðmálaauglýsingu framan á sér," segir Jóhann Már.

Hann segist vita það að veðmálafyrirtækin séu tilbúin að styrkja íslensk félög fyrir mun hærri upphæðir en flestir núverandi styrktaraðilar eru að borga.

Smelltu hér til að hlusta á þáttinn.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.