Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   fim 12. mars 2020 10:54
Elvar Geir Magnússon
Leikmenn Real Madrid í sóttkví - Óvíst með leikinn gegn City
Zinedine Zidane.
Zinedine Zidane.
Mynd: Getty Images
Leikmenn Real Madrid hafa verið sendir heim af æfingasvæði félagsins eftir að leikmaður í körfuboltaliði félagsins var greindur með kórónaveiruna.

Allir leikmenn félagsins hafa sjálfir sett sig í sóttkví en fótboltaliðið og körfuboltaliðið deila sömu aðstöðu að hluta á æfingasvæðinu.

Real Madrid á að spila við Eibar á morgun en ólíklegt er að sá leikur muni fara fram.

Þá er vafi varðandi Meistaradeildarleikinn gegn Manchester City sem á að vera í næstu viku.
Athugasemdir
banner
banner