Fotbolti.net
12.04.22 - 18:30
Elvar Geir Magnússon

Glódís: Þá erum við drullugóðar í því líka

Auglýsing
Glódís Perla Viggósdóttir.

Glódís Perla Viggósdóttir.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Icelandair
„Inn á vellinum leið mér mjög vel og eins og þær væru ekkert að fara að skora," sagði Glódís Perla Viggósdóttir, varnarmaður íslenska landsliðsins, eftir sigur á Tékklandi í undankeppni HM í dag.
„Mér fannst við spila flottan varnarleik og Sandra þurfti ekki að taka neina rosalega vörslu. Við héldum þeim frá markinu okkar og ég er ótrúlega ánægð með allt liðið."

„Þegar við þurfum að verjast, þá erum við drullugóðar í því líka," sagði Glódís.

Tékkneska liðið kom boltanum í netið í uppbótartímanum, en dómarinn dæmdi markið af.

„Það var óþægilegt, en maður fór strax að hugsa að við þyrftum þá bara að skora annað og vinna leikinn. Svo heyrir maður flautið og þá hélt ég að hún væri að dæma víti. Ég veit ekki hvað gerðist, en það var eitthvað sem fór úrskeiðis hjá þeim. Við tökum því bara og fögnum þessum sigri."

Ísland er núna í góðum málum í riðlinum; í bílstjórasætinu um að komast á HM í fyrsta sinn.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.