Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 12. maí 2022 07:10
Elvar Geir Magnússon
De Bruyne bauð Haaland velkominn með fagni sínu
Mynd: Getty Images
Kevin De Bruyne hélt sýningu í gær þegar hann skoraði fjögur mörk fyrir Manchester City í 5-1 útisigri gegn Wolves. City er komið enn nær Englandsmeistaratitlinum þetta tímabilið.

Þegar De Bruyne fagnaði þriðja marki sínu þá lék hann eftir frægt fagn Erling Haaland og með því bauð hann norska sóknarmanninn velkominn til félagsins.

City þarf fjögur stig úr síðustu tveimur leikjum sínum til að vera öruggt með Englandsmeistaratitilinn.

Í vikunni staðfesti City að félagið hefði gert samkomulag við Borussia Dortmund um kaupin á hinum 21 árs gamla Haaland sem gengur í raðir Englandsmeistarana í sumar.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner