Eins og að mæta Bestu deildar liði
Þróttur tekur á móti Breiðabliki í fyrsta leik 16-liða úrslitum Mjólkurbikars karla á morgun. Leikurinn hefst klukkan 17:30 og fer fram á AVIS-vellinum í Laugardal.
Aron Bjarnason (1995) er leikmaður Breiðabliks og mætir á morgun uppeldisfélaginu sínu. Hann yfirgaf félagið eftir tímabilið 2013 og hefur spilað með Fram, ÍBV, Breiðabliki, Ujpest, Val og Sirius frá því að hann yfirgaf Þróttara.
Aron Bjarnason (1995) er leikmaður Breiðabliks og mætir á morgun uppeldisfélaginu sínu. Hann yfirgaf félagið eftir tímabilið 2013 og hefur spilað með Fram, ÍBV, Breiðabliki, Ujpest, Val og Sirius frá því að hann yfirgaf Þróttara.
Fjölskyldan mun halda með Breiðabliki
Sóknarmaðurinn ræddi við Fótbolta.net um leikinn á morgun.
„Það leggst bara vel í mig að mæta Þrótti, hörku lið sem hefur verið á stöðugri uppleið undanfarin ár. Það verður skemmtilegt að mæta þeim í Laugardalnum, stutt fyrir mig að fara þar sem ég bý í hverfinu og völlurinn hjá þeim er orðinn flottur."
„Ég hef mætt þeim nokkrum sinnum en ekki oft í keppnisleikjum í Íslandsmóti eða bikar. Maður ber alltaf tilfinningar til félagsins og það er eitthvað sem hverfur ekki þó svo að það hafi farið ungur frá félaginu."
„Þó að fjölskyldan mín sé í hverfinu og yngri systir mín í Þrótti held ég að það sé ekki spurning að þau haldi með Breiðabliki á morgun," segir Aron.
Verður erfiður leikur
Hvað þarf Breiðablik að gera til að ná í jákvæð úrslit á morgun?
„Við förum yfir það í dag hvernig við ætlum að mæta þeim, en við vitum að þeir eru í hörku formi og vel spilandi lið. Við mættum þeim í æfingaleik þegar við vorum í Sambandsdeildinni í vetur og áttum okkur á því að þetta verður erfiður leikur."
Eins og að mæta Bestu deildar liði
Þróttur er með fullt hús stiga eftir þrjár umferðir í Lengjudeildinni og sló út Bestu deildar lið ÍBV í 32-liða úrslitum Mjólkurbikarsins.
„Þetta er bara eins og mæta Bestu deildar liði, þeir hafa sýnt það í leikjum á undirbúningstímabilinu og unnu svo ÍBV í bikarnum. Byrjunin hjá þeim í deildinni hefur því ekki komið manni á óvart eftir að hafa fylgst með þeim á síðasta ári."
Meðvitaðir um að þeir geta gert betur með boltann
Hvernig líður Aroni með byrjunina á tímabilinu hjá Blikum? Liðið er með tólf stig eftir sex umferðir.
„Okkur líður bara ágætlega með byrjunina á tímabilinu, værum auðvitað til í að vera með fleiri stig. Spilamennskan hefur misjöfn og við erum meðvitaðir um það að við getum gert betur með boltann en varnarleikurinn hefur verið heilt yfir góður sem er jákvætt."
Spilaði í gegnum meiðsli allt síðasta tímabil
Aron byrjaði tímabilið meiddur en hefur spilað í undanförnum leikjum. Hvernig er heilsan? Er hún betri en í fyrra?
„Í byrjun tímabilsins í fyrra byrjaði ég að finna fyrir verkjum á kviðsvæðinu og var í raun nánast allt mótið að rembast við að spila í gegnum þau meiðsli. Eins og er oft með meiðsli á kvið er erfitt að greina þau og læknarnir töldu það ekki þess virði að skera mig upp á miðju tímabili. Ég gerði mitt besta í því að spila í gegnum þetta og varð svo loksins betri þegar við vorum að klára tímabilið og í Sambandsdeildinni."
„Eftir tímabilið tók ég bara alveg hvíld í nokkrar vikur ásamt því að gera ákveðnar æfingar sem hefur hjálpað mér með þetta. Ég náði því að æfa vel á undirbúningstímabilinu en lenti í smá vöðvatognun rétt fyrir mót og missti þar af leiðandi af fyrstu leikjunum í mótinu en í góðum málum núna," segir Aron.



