Fotbolti.net
23.11.26 - 10:37
Elvar Geir Magnússon

Holloway orðinn atvinnulaus - „Dead man walking“

Holloway orðinn atvinnulaus - „Dead man walking“
Canon

Mynd: Skjáskot

Hinn litríki karakter Ian Holloway hefur verið rekinn sem stjóri Swindon Town eftir rétt rúm tvö ár við stjórnvölinn.

Tap gegn Newport County á laugardaginn skildi liðið eftir í 17. sæti í ensku D-deildinni og var það fjórði tap þeirra í röð í öllum keppnum. Þeir hafa aðeins unnið tvo af síðustu fimmtán leikjum sínum og Holloway sagði í síðasta mánuði að hann væri „gangandi dauður maður“ ef liðið næði ekki að rétta úr kútnum.

Brot úr þessu kostulega viðtali má sjá hér að neðan.

Holloway er reynslumikill stjóri sem stýrði Blackpool og Crystal Palace upp í ensku úrvalsdeildina á sínum tíma. Þá er hann þekktur fyrir áhugaverð svör og mörg gullkorn í viðtölum við fjölmiðla.

England 2. deild - karlar

#LiðLmunStig
1Salford City16+1033
2Barnet14+1129
3Chesterfield16+825
4Grimsby16+924
5York City16+424
6Crewe16024
7Walsall14+923
8Exeter16+323
9Newport16+522
10Tranmere Rovers16+222
11Gillingham16-121
12Cheltenham Town16-621
13Shrewsbury16-721
14Accrington Stanley16+420
15Fleetwood Town16020
16Bristol R.16-519
17Swindon Town16-719
18Northampton15018
19Port Vale14-318
20Oldham Athletic16-516
21Colchester15-615
22Rochdale16-1115
23Rotherham15-713
24Crawley Town13-712
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.