Fotbolti.net
23.11.26 - 11:55
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Þróttur vill fá Halldór Snæ - Orðaðir við fjóra

Halldór Snær

Halldór Snær

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Þróttur hefur samkvæmt heimildum áhuga á því að fá Halldór Snæ Georgsson frá KR og Þróttarar hafa lagt fram tilboð í markmanninn.

Halldór Snær (2004) var kostur númer tvö hjá KR þegar Arnar Freyr Ólafsson var heill heilsu á liðnu tímabili. Halldór Snær er samningsbundinn KR út tímabilið 2028.

Þróttur, sem verður í Bestu deildinni á næsta tímabili, hefur verið að skoða markmannsmálin og var fyrr í vetur orðað við Stefán Þór Ágústsson hjá Val.
Vilja fá gamla Þróttara heim og hafa rætt við Viðar Ara
TENGT EFNI

Vilja fá gamla Þróttara heim og hafa rætt við Viðar Ara

Þróttur hefur þá áfram áhuga á því að fá Viðar Ara Jónsson frá HamKam en Viðar Ari er á heimleið í vetur og hefur einnig verið orðaður við Fram.

Samkvæmt heimildum Fótbolta.net horfa Þróttarar einnig til Gyrðis Hrafns Guðbrandssonar hjá KR og Daníel Finns Matthíassonar hjá Stjörnunni.

Þór og Keflavík hafa sömuleiðis áhuga á Gyrði. Gyrðir, sem er fæddur 1999, lék frábærlega á láni með Þór seinni hluta tímabilsins og hjálpaði Þórsurum að halda sæti sínu í Bestu.
Viðar Ari

Viðar Ari

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.