Fotbolti.net
23.11.26 - 10:45
Elvar Geir Magnússon

Elías snýr aftur - Er í hóp í kvöld

Elías snýr aftur - Er í hóp í kvöld
Canon

Mynd: EPA

Íslenski landsliðsmarkmaðurinn Elías Rafn Ólafsson hefur misst af síðustu níu leikjum danska liðsins Midtjylland en er nú mættur aftur í slaginn.

Hann er í leikmannahópi Midtjylland sem mætir Bröndby á útivelli í kvöld.
Elías Rafn: Sagt að koma aftur ef ég færi að pissa blóði
TENGT EFNI

Elías Rafn: Sagt að koma aftur ef ég færi að pissa blóði

Elías meiddist á nýra og var ekki með Íslandi í riðlakeppni Þjóðadeildarinnar. Hákon Rafn Valdimarsson stóð þá í markinu og greip tækifærið og er orðinn aðalmarkvörður landsliðsins á ný.

Midtjylland trónir á toppi dönsku úrvalsdeildarinnar, með jafnmörg stig og FCK en á leik til góða.


Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.