Fotbolti.net
12.05.26 - 10:41
Elvar Geir Magnússon

Southampton biður um meiri tíma í njósnamálinu

Southampton biður um meiri tíma í njósnamálinu
Canon

Mynd: EPA

Southampton hefur beðið um meiri tíma til að framkvæma innri skoðun eftir að félagið var ákært fyrir að framkvæma njósnir gagnvart andstæðingum sínum í Middlesbrough.

Enska fótboltadeildin hefur ásakað Southampton um að hafa njósnað um æfingu hjá Middlesbrough á æfingasvæði félagsins tveimur dögum áður en liðin mættust.

Sá leikur endaði svo 0-0 en það var fyrri leikur liðanna í undanúrslitum umspil Champioship-deildarinnar. Seinni leikurinn fer fram í kvöld.
Kæra Southampton fyrir njósnir
TENGT EFNI

Kæra Southampton fyrir njósnir

Southampton hefur ekki neitað ásökununum og Tonda Eckert, stjóri liðsins, yfirgaf fréttamannafund snemma eftir að hafa verið spurður ítrekað út í ásakanirnar og neitað að svara.

Sigurliðið í kvöld mætir Hull City í úrslitaleik umspilsins á Wembley þann 23. maí.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.