Fotbolti.net
12.05.26 - 15:50
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Þóroddur fer yfir stóra atvikið í Garðabæ

Finnur Tómas og Örvar Eggerts.

Finnur Tómas og Örvar Eggerts.

Canon

Mynd: Samsett

Það átti sér stað áhugavert atvik undir lok leiks Stjörnunnar og KR síðasta föstudag þegar Örvar Eggertsson (sóknarmaður Stjörnunnar) og Finnur Tómas Pálmason (varnarmaður KR) glímdu inn á vítateig Stjörnunnar.

Þeir voru í baráttu inn á vítateig KR, í stöðunni 2-3 fyrir KR, sem endaði með því að Örvar átti skot sem fór framhjá marki KR. Rétt fyrir skotið sést vel að Finnur Tómas grípur í treyju Örvars sem ákvað að standa af sér togið og reyndi að skora. Sigurður Hjörtur Þrastarson, dómari leiksins, virtist vel staðsettur en dæmdi ekkert.

Fótbolti.net ræddi við Þórodd Hjaltalín, dómarastjóra KSÍ, um atvikið og almennt þá umræðu að menn fái lítið fyrir það að standa brot af sér.
Jökull orðinn helvíti þreyttur á að ákvarðanir fari gegn Örvari
TENGT EFNI

Jökull orðinn helvíti þreyttur á að ákvarðanir fari gegn Örvari

Lestu um leikinn: Stjarnan 2 - 3 KR
„Í þessu atviki hefði Finnur Tómas lítið geta sagt ef það hefði verið dæmt á hann víti," segir Þóroddur.

„Því miður þá er það stundum þannig að mönnum er hreinlega refsað fyrir að reyna að standa af sér í baráttunni milli tveggja leikmanna og halda áfram. Á sama tíma erum við alltaf að reyna að fá menn til að láta sig ekki detta. Við erum alltaf að ræða þetta okkar á milli og við sjáum þetta í öllum deildum í Evrópu."

„Ég get verið sammála því að við dómarar erum ekki nógu duglegir að dæma þegar verið er að brjóta á mönnum og þeir að reyna að standa það af sér."

„Varðandi atvikið hjá Finni og Örvari þá er ég á því að vítaspyrna hefði verið rétt niðurstaða. Þar er umræðuefnið og matsatriðið að þeir séu báðir að toga, ýta og halda. En þá hefði meira að segja verið betra að dæma sóknarbrot heldur en að gera ekkert,"
segir Þóroddur.


Það skal tekið fram að í umfjöllun Stúkunnar á SÝN Sport, þar sem leikurinn var gerður upp, var einnig talað um mögulega vítaspyrnu fyrir KR fyrr í leiknum þegar Amin Cosic féll við eftir návígi við Bjarka Hauksson. Sérfræðingar þáttarins voru á því að það hefði átt að vera víti.

Stjarnan mætir KR aftur á morgun í 16-liða úrslitum Mjólkurbikarsins. Sá leikur hefst klukkan 20:00 og fer fram á Samsungvellinum.
Doddi Hjaltalín er reyndur dómari.

Doddi Hjaltalín er reyndur dómari.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Sigurður Hjörtur dæmdi leikinn í Garðabænum.

Sigurður Hjörtur dæmdi leikinn í Garðabænum.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Útvarpsþátturinn - Úrslitaleikur um starfið

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.