mið 12. júní 2019 11:15
Elvar Geir Magnússon
Í 24 ára fangelsi fyrir að misnota fótboltastráka kynferðislega
Mynd: Getty Images
Bob Higgins, fyrrum þjálfari yngri flokka hjá Southampton, hefur verið dæmdur fyrir að áreita 24 unga stráka á 25 ára tímabili.

Higgins var dæmdur í 24 ára og þriggja mánaða fangelsisvist.

Hann sýndi engar tilfinningar þegar dómurinn var kveðinn upp.

Dómarinn sagði að Higgins hafi verið svikult rándýr sem hafi misnotað stöðu sína sem virtur þjálfari. Hann hafi nýtt sér drauma strákana um að verða atvinnumenn og að þeir hafi verið tilbúnir að gera allt til að gera þjálfara sinn ánægðan.

Dómarinn segir að fórnarlömbin hafi gefið vitnisburð af hugrekki. Margir hefðu skammast sín og einhverjir af þeim leiðst út í áfengi, þunglyndi eða geðræna kvilla.

Eitt af fórnarlömbunum segir að Higgins hafi verið illa innrættur og hafi heilaþvegið sig.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner