Einn leikur fór fram í 4. deild í dag og einn fór fram í gær.
KH vann 2-1 sigur á Hamar í B-riðli í dag. Sveinn Þorkell og Sigfús Kjalar komu KH í 2-0 en Unnar Magnússon minnkaði muninn fyrir Hamar í lok leiks. KH er komið í þá stöðu að ef liðið vinnur þá tvo leiki sem liðið á til góða á Hamar þá er liðið með fimm stiga forskot á Hamar á toppi riðilsins.
Í gær vann KÁ 0-5 sigur á Reyni H á Ólafsvíkurvelli. Aron Hólm skoraði tvennu fyrir KÁ og þeir Ólafur Sveinmar, Egill Örn og Daði Snær skoruðu eitt hver. KÁ er sem stendur í efsta sæti C-riðils með 24 stig eftir tíu leiki. Reynir er með átta stig í 6. sæti riðilsins.

B-riðill (í dag)
KH 2 - 1 Hamar
1-0 Sveinn Þorkell Jónsson ('34)
2-0 Sigfús Kjalar Árnason ('48)
2-1 Unnar Magnússon ('90, víti)
C-riðill (í gær)
Reynir H 0 - 5 KÁ
0-1 Daði Snær Ingason ('48)
0-2 Ólafur Sveinmar Guðmundsson ('59)
0-3 Egill Örn Atlason ('65)
0-4 Aron Hólm Júlíusson ('68)
0-5 Aron Hólm Júlíusson ('90)
Stöðutaflan
L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 |

Athugasemdir