Fotbolti.net
11.07.26 - 22:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Martinez: Fjölmiðlar skapa deilur

Martinez: Fjölmiðlar skapa deilur
Canon

Mynd: EPA

Argentína mætir Sviss í 8-liða úrslitum á HM í nótt eftir að liðið vann Egyptalandi í umtöluðum leik í 16-liða úrslitum.

Egyptar komust yfir og skoruðu aftur en markið var dæmt af því það var brotið á Lisandro Martinez í aðdragandanum. Egyptar náðu hins vegar tveggja marka forystu en Argentína kom til baka og sigurmarkið kom í uppbótatíma.
Egyptar voru brjálaðir yfir dómgæslunni og töldu að brotið hafi verið á Mohamed Salah í aðdraganda sigurmarksins. Lisandro Martinez, varnarmaður argentíska liðsins, var spurður hvort hann vildi tjá sig um dómgæsluna á mótinu.

„Nei, alls ekkert. Ég tel að þeir séu að standa sig frábærlega. Það er eitthvað fyrir ykkur [fjölmiðlana], sem skapa stundum deilur," sagði Martinez.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.