Fotbolti.net
11.07.26 - 22:24
Jóhann Þór Hólmgrímsson

„Nú þarf Tindastóll og Skagafjörður sem samfélag að ákveða hvað það vill standa fyrir"

María Dögg í leik með Tindastóli

María Dögg í leik með Tindastóli

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hertz
Tindastóls tók þá ákvörðun í dag að gefa leikinn gegn Keflavík í Lengjudeild kvenna vegna manneklu í hópnum. Það er mikið um meiðsli og tveir erlendir leikmenn hafa yfirgefið félagið.
Tindastóll mætir ekki til leiks
TENGT EFNI

Tindastóll mætir ekki til leiks

„Því miður urðum við að taka þá ákvörðun að gefa leik mfl. kvenna Tindastóls sem átti að fara fram á móti Keflavík í dag. Mikil meiðsli eru að hrjá leikmannahópinn og tveir erlendir leikmenn eru farnir úr hópnum sem hefur sett okkur í þá stöðu að ekki var unnt að fullskipa liðshópinn í dag. Reynt var að fá leiknum frestað eða spilað á öðrum tíma en því var neitað. Unnið er að því að styrkja hópinn og skýrast þau mál á næstu dögum. Einnig eigum við von á því að einhverjir leikmenn fari að verða leikhæfar á ný eftir meiðsli,“ segir í tilkynningu Tindastóls.

María Dögg Jóhannesdóttir, sem ólst upp á Sauðárkróki en leikur með Þór/KA í dag, skrifaði pistil á Facebook síðu sína í kvöld þar sem hún segir m.a. að það sé erfitt að horfa upp á stöðuna sem félagið er í.

„Nú þarf Tindastóll og Skagafjörður sem samfélag að ákveða hvað það vill standa fyrir. Erum við jafn mikill íþróttabær og við viljum meina eða erum við einungis körfubolta samfélag? Ég hef alltaf borið mikla virðingu fyrir því sem körfuboltinn stendur fyrir en það að heyra endalaust út í bæ hvað fótboltinn sækir marga útlendinga og til hvers erum við að þessu ef heimamenn fá ekki að spila, svo mætir þetta sama fólk og styður körfuna eins og enginn sé morgundagurinn. Þegar öllu er á botninn hvolft erum við stuðningsmenn Tindastóls sama hvort það séu útlendingar eða íslendingar á vellinum," skrifar María.

Hún segir að það sé erfitt að sannfæra Íslendinga að fara norður en það hefur allt verið reynt.

„Það sem gerir Tindastól að svo einstöku liði er samheldni og stuðningur leikmanna við hvort annað. Eru tilbúnar að gera allt fyrir hvor aðra innan sem utan vallar, það tekur hins vegar mjög mikið á að vera alltaf að berjast fyrir tilverurétti sínum í þessu samfélag sem við búum í."

„Tindastóll á stolta sögu og fyrir ekki svo löngu síðan var liðið í Bestu deild kvenna og er það afrek sem hefur aldrei gerst áður í sögu knattspyrnudeildarinnar og klúbburinn á skilið bjarta framtíð. Ég vona svo innilega að næstu skref verði tekin með hagsmuni leikmanna og félagsins að leiðarljósi, því engin einstaklingur er stærri en félagið sjálft."

„Nú þarf Tindastóll og Skagafjörður sem samfélag að ákveða hvað það vill standa fyrir"
Canon

Mynd: Fótbolti.net - J.L.

„Nú þarf Tindastóll og Skagafjörður sem samfélag að ákveða hvað það vill standa fyrir"
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.