Fotbolti.net
12.07.26 - 19:00
Ívan Guðjón Baldursson

Yakin mjög ósáttur: Gjörsamlega ótrúleg ákvörðun

Yakin mjög ósáttur: Gjörsamlega ótrúleg ákvörðun
Canon

Mynd: EPA

Murat Yakin, landsliðsþjálfari Sviss, var gríðarlega ósáttur með dómgæsluna eftir að hans menn voru slegnir úr leik í 8-liða úrslitum heimsmeistaramótsins síðustu nótt.
HM: Argentína í undanúrslit eftir sigur í framlengingu gegn tíu Svisslendingum
TENGT EFNI

HM: Argentína í undanúrslit eftir sigur í framlengingu gegn tíu Svisslendingum

Staðan var jöfn, 1-1, þegar Breel Embolo dýfði sér til jarðar með tilþrifum og fiskaði gult spjald á Leandro Paredes, leikmann Argentínu. VAR-teymið skoðaði atvikið og benti dómaranum á að hér hafi hann verið plataður. Eftir nánari athugun var dómnum snúið við og gula spjaldið tekið af Paredes, en gefið réttilega til Embolo í staðinn. Vandamálið var að Embolo var eini leikmaður vallarins sem var þegar á gulu spjaldi og gekk grátandi af velli eftir hávær mótmæli.

„Okkur var refsað útaf dómaramistökum. Það var engin ástæða til að gefa honum gult spjald, ég skil þetta ekki. Þetta var mjög saklaust hjá honum og ákvörðun dómarans er gjörsamlega ótrúleg. Ég trúi ekki að dómarateymið hafi verið sammála um þessa niðurstöðu," sagði Yakin eftir lokaflautið.

„Ég myndi ekki segja að dómgæslan hafi hallað á annað hvort liðið, en þetta eru stór mistök sem réðu úrslitum leiksins. Við getum kvartað núna en ég verð á sama tíma að óska Argentínu til hamingju."

Fékk rautt spjald fyrir dýfu og fór grátandi af velli
TENGT EFNI

Fékk rautt spjald fyrir dýfu og fór grátandi af velli

Yakin mjög ósáttur: Gjörsamlega ótrúleg ákvörðun
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.