26.08.26 - 18:36
Brynjar Ingi Erluson
Leggja fram 45 milljóna evra tilboð í Leao

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Tyrknesku meistararnir í Galatasaray hafa lagt fram formlegt 45 milljóna evra tilboð í Rafael Leao, leikmann AC Milan á Ítalíu.

TENGT EFNI
Villa dregur sig úr viðræðum um Leao
Galatasaray hefur lengi haft áhuga á Rafael Leao og nú virðast félögin loksins vera að nálgast samkomulag. Aston Villa dró sig úr baráttunni í dag og stefnir Portúgalinn því til Tyrklands.
Yagiz Sabuncuoglu, einn virtasti íþróttablaðamaður Tyrklands, segir Galatasaray hafa boðið 45 milljónir evra í Leao. Búist er við að AC Milan samþykki tilboðið.
Leao á enn eftir að semja við Galatasaray um kaup og kjör en ekki er talið að það muni standa í vegi fyrir félagaskiptunum.
Leao er 27 ára og hefur leikið með Milan undanfarin sjö ár. Hann var meðal annars valinn besti leikmaður ítölsku deildarinnar þegar félagið varð meistari árið 2022.