Fotbolti.net
12.08.26 - 06:00
Brynjar Ingi Erluson

Hull vill fá markahæsta leikmann B-deildarinnar

Vipotnik í leik með slóvenska landsliðinu

Vipotnik í leik með slóvenska landsliðinu

Canon

Mynd: EPA

Nýliðar Hull City eru í viðræðum við Swansea City um slóvenska framherjann Zan Vipotnik.
Vipotnik er 24 ára gamall og varð markakóngur ensku B-deildarinnar á síðustu leiktíð.

Hann skoraði 23 mörk fyrir Swansea, var valinn í lið tímabilsins og útnefndur besti leikmaður félagsins á lokahófinu.

Sky Sports segir Hull hafa mikinn áhuga á framherjanum. Swansea hafnaði fyrsta tilboði félagsins upp á 10 milljónir punda og vill fá 20 milljónir fyrir leikmanninn.

Vipotnik á fjögur ár eftir af samningi sínum og Swansea er því ekki undir neinni pressu að selja.

Það á eftir að koma í ljós hvort Hull snúi aftur með nýtt og endurbætt tilboð á næstu dögum.

Hull tryggði sér sæti í ensku úrvalsdeildinni í gegnum umspilið í vor. Liðið hefur leik gegn Manchester United á heimavelli 22. ágúst.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.