12.08.26 - 05:55
Brynjar Ingi Erluson
Ísland í dag - Toppliðið í Úlfarsárdal

FH-ingar ætla sér að halda í toppsætið

Mynd: Fótbolti.net - J.L.

FH-ingar ætla sér að halda í toppsætið

Mynd: Fótbolti.net - J.L.

Þrír leikir fara fram í 16. umferð Bestu deildar kvenna klukkan 19:15 í kvöld.
Þróttur tekur á móti Val á AVIS-vellinum en Valskonur eru í bullandi fallbaráttu.
Valur hefur verið eitt af stórveldum íslenska kvennaboltans undanfarna áratugi en liðið er nú í sögulegri lægð. Það er þó einhver von, liðið komst aftur á sigurbraut í síðustu umferð og vill byggja ofana á það.
Valskonur eru í næstneðsta sæti með aðeins 13 stig, tveimur stigum fyrir ofan botninn. Þróttur er í áttunda sæti með 15 stig og því mikið undir í leiknum.
Íslands- og bikarmeistarar Breiðabliks taka á móti Grindavík/Njarðvík á Kópavogsvelli.
Blikar eru í harðri titilbaráttu við FH. Bæði lið eru með 30 stig en FH er með betri markatölu. Grindavík/Njarðvík situr í fimmta sæti með 19 stig.
Fram fær topplið FH í heimsókn á Lambhagavöllinn.
Framkonur voru komnar á gott skrið og unnu fjóra deildarleiki í röð áður en þeir töpuðu fyrir Þór/KA í síðustu umferð. Fram er í sjötta sæti með 16 stig.
Leikir dagsins:
Besta kvenna
19:15 Þróttur R.-Valur (AVIS völlurinn)
19:15 Breiðablik-Grindavík/Njarðvík (Kópavogsvöllur)
19:15 Fram-FH (Lambhagavöllurinn)