12.08.26 - 19:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Sölvi: Allar líkur á því að Gunnar fari eftir KR leikinn

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Gunnar Vatnhamar, varnarmaður Víkings, er á förum frá félaginu til danska félagsins Vejle. Sölvi Geir Ottesen sagði í viðtali við Fótbolta.net í dag að hann myndi líklega fara eftir leikinn gegn KR þann 30. ágúst.

TENGT EFNI
Gunnar Vatnhamar á förum frá Víkingi
„Það eru allar líkur á því að hann fari eftir KR leikinn. Ég er ekki búinn að sjá það á blaði og það er ekki búið að gerast. Hann er ennþá leikmaður Víkings, ég er ekki mikið inn í þessu, ég er bara að spá í hvernig ég undirbý liðið fyrir næsta leik og Gunnar er þar," sagði Sölvi.
Víkingur fær svissnesku meistarana í Thun í heimsókn í forkeppni Evrópudeildarinnar á morgun. Víkingur er 3-0 undir í einvíginu eftir fyrri leikinn. Liðið heimsækir síðan FH þann 16. ágúst fyrir KR leikinn á Meistaravöllum.
Víkingur er á toppi Bestu deildarinnar með sex stiga forystu á KR.