12.08.26 - 18:35
Kári Snorrason
Sveinn Aron: Hugurinn alltaf úti og að komast sem lengst
Auglýsing

Skrifaði undir hálfs árs samning við Íslandsmeistarana.

Mynd: Víkingur

„Mjög spennandi tímar hérna og mig langaði að vera partur af þessu.“

Sveinn Aron Guðjohnsen var í gær tilkynntur sem nýr leikmaður Íslandsmeistara Víkings.
Sveinn, sem er 28 ára gamall, skrifaði undir hálfs árs samning við félagið en hann lék síðast með Cavese í ítölsku C-deildinni en varð samningslaus í sumar.
Fótbolti.net ræddi við Svein Aron í félagsheimili Víkings eftir æfingu liðsins fyrr í dag.

TENGT EFNI
Sveinn Aron Guðjohnsen til Víkings (Staðfest)
„Kári (Árnason) heyrði í mér fyrir um fjórum dögum síðan. Ég var ekki lengi að taka af skarið. Það eru mjög spennandi tímar hérna og mig langaði að vera partur af þessu.“
Hugurinn úti og að komast sem lengst
Voru mörg félög búin að hlera þig þar sem þú ert samningslaus?
„Það var einhver áhugi en ekki mikið í gangi, sem hjálpaði að taka þessa ákvörðun.“
„Hugurinn er alltaf þar að ég vil vera úti og komast sem lengst. En það eru spennandi tímar hérna og ég er mjög sáttur að vera kominn.“
Þarf að vinna í leikforminu
Sveinn spilaði síðast í lok apríl með Cavese. „Ég þarf að vinna í leikformi, ég er búinn að æfa vel í þessu fríi. Ég þarf eina, tvær vikur til þess að koma mér í leikform.“
Víkingur mætir FH í næstu umferð. „Ég er alltaf klár í mínútur. Það er bara spurning um hversu margar þær eru,“ sagði Sveinn Aron léttur.
Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum hér að ofan.