Fotbolti.net
12.09.20 - 13:45
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Arteta með miklar kröfur - „Vill að við séum fullkomnir"

Arteta ánægður með sinn mann.

Arteta ánægður með sinn mann.

Canon

Mynd: Getty Images

Alexandre Lacazette skoraði fyrsta mark ensku úrvalsdeildarinnar Arsenal lagði Fulham að velli í opnunarleiknum.

Úrslitin:
England: Þægilegur sigur Arsenal í opnunarleiknum
Arsenal byrjar tímabilið mjög vel og þessir sigur fyllir stuðningsmenn af bjartsýni fyrir framhaldið.

„Þetta var besta leiðin til að byrja tímabilið," sagði Lacazette í viðtali eftir leik. „Við vildum vinna, halda hreinu og virða það sem stjórinn vildi. Allir eru ánægðir."

„Hann vill að við séum fullkomnir. Við undirbjuggum okkur vel fyrir leikinn í vikunni. Við erum með mikinn metnað."

„Ég er ánægður hjá Arsenal, það eru bara fjölmiðlar og annað fólk sem segir það ekki. Ég vil spila og vinna titla," sagði Lacazette, ánægður með sigurinn.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.