Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mán 12. september 2022 20:20
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Umboðsmaður Rashford ýkti áhuga PSG
Mynd: Getty Images

Marcus Rashford átti ekki gott tímabil með Manchester United á síðiasta tímabili. Hann skoraði aðeins fimm mörk í öllum keppnum.


Hann virtist mjög áhugalaus undir það síðasta á síðasta tímabili og þegar PSG bankaði á dyrnar hefði enginn kennt honum um að vilja fara þangað.

Ben Jacobs fréttamaður hjá CBS greinir frá því á Twitter að Rashford hafi aldrei verið inn í myndinni hjá PSG.

„PSG lítur ekki svo á að þeim hafi mistekist að næla í Rashford. Félaginu fanst alltaf eins og umboðsmaðurinn hans væri að nota hann til að fá betri samning hjá United," skrifar Jacobs á Twitter.

United er sagt tilbúið að bjóða Rashford nýjan samning en núgildandi samningur rennur út árið 2024. Rashford er með þrjú mörk og tvær stoðsendingar í sex leikjum á þessari leiktíð.


Athugasemdir
banner
banner