Fotbolti.net
12.09.26 - 18:11
Ívan Guðjón Baldursson
Byrjunarliðsfréttir

Byrjunarlið Sunderland og Arsenal: Óbreytt frá síðustu helgi

Byrjunarlið Sunderland og Arsenal: Óbreytt frá síðustu helgi
Canon

Mynd: Premier League

Sunderland og Arsenal eigast við í lokaleik dagsins í ensku úrvalsdeildinni og hafa byrjunarliðin verið tilkynnt.
Hvorki Régis Le Bris né Mikel Arteta gera breytingar á byrjunarliðunum sem mættu til leiks um síðustu helgi. Granit Xhaka, fyrrum fyrirliði Arsenal, byrjar á miðjunni hjá Sunderland gegn sínu fyrrum félagsliði, Brian Brobbey leiðir línuna og byrjar Malick Fofana á bekknum eftir að hafa verið orðaður við Arsenal í sumar.

Í liði Arsenal er Jurriën Timber meðal varamanna og er í hóp í fyrsta sinn síðan Arsenal tapaði úrslitaleik Meistaradeildarinnar eftir vítaspyrnukeppni fyrr í sumar. Timber missti af HM í sumar vegna meiðsla.

Bruno Guimaraes þarf að sætta sig við bekkjarsetu alveg eins og Viktor Gyökeres, Eberechi Eze og fleiri öflugir fótboltamenn.

Sunderland: Roefs, Meunier, Mukiele, Ballard, Danso, Reinildo, Xhaka, Sadiki, Le Fee, Angulo, Brobbey.
Varamenn: Ellborg, Hume, O'Nien. Alderete, Methalie, Talbi, Rigg, Fofana, Isidor.

Arsenal: Raya, White, Konsa, Gabriel, Calafiori, Rice, Lewis-Skelly, Odegaard, Saka, Tzolis, Havertz.
Varamenn: Eze, Timber, Kepa, Hincapie, Gyokeres, Madueke, Merino, Zubimendi, Guimaraes.
Byrjunarlið Sunderland og Arsenal: Óbreytt frá síðustu helgi
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.