Lionel Messi er af mörgum talinn besti leikmaður heims og mögulega sá besti í sögunni. Þrátt fyrir það þá telur Imanol, stjóri Real Socidedad, að Messi yrði hausverkur fyrir hann ef Messi væri í Sociedad.
Messi hefur skorað fimmtán mörk í 20 leikjum gegn Sociedad og bætt við átta stoðsendingum.
Messi hefur skorað fimmtán mörk í 20 leikjum gegn Sociedad og bætt við átta stoðsendingum.
„Hann myndi ekki passa inn í hugmyndafræði okkar," sagði Imanol við Marca.
„Hann er frábær leikmaður sem gerir ótrúlega hluti en hluti af okkar leikstíl er að allir séu jafnir og viðhorfið sé ekki þannig að einhver einn sé betri en annar. Að þjálfa Messi væri hausverkur jafnvel þó við myndum vinna fleiri leiki."
Barcelona mætir Eibar um næstu helgi og Sociedad mætir Betis.
Athugasemdir