Fotbolti.net
12.10.26 - 10:30
Snæbjört Pálsdóttir

Cecilía Rán: Ætlum okkur stóra hluti í Meistaradeildinni

Cecilía Rán Rúnarsdóttir nýtur lífsins hjá Inter á Ítalíu og segir það mikil forréttindi að fá að spila í Meistaradeildinni með félaginu.

Cecilía Rán Rúnarsdóttir nýtur lífsins hjá Inter á Ítalíu og segir það mikil forréttindi að fá að spila í Meistaradeildinni með félaginu.

Canon

Mynd: Inter

Kvennalandslið

Cecilía Rán Rúnarsdóttir, landsliðsmarkvörður Íslands, segir það mikil forréttindi að fá að mæta bestu liðum Evrópu með ítalska stórliðinu Inter, sem tryggði sér sæti í Meistaradeildinni í haust.

Cecilía hélt að Hlín hefði skorað: „Ég sá bara Eiríksdóttir uppi á skjánum“
TENGT EFNI

Cecilía hélt að Hlín hefði skorað: „Ég sá bara Eiríksdóttir uppi á skjánum“

Inter tryggði sér sætið eftir dramatískt einvígi gegn þýska liðinu Wolfsburg í undankeppninni. Þýska liðið vann fyrri leikinn 2-0 en Inter sneri einvíginu sér í hag á heimavelli og hafði betur í vítaspyrnukeppni.

Cecilía átti stóran þátt í því að tryggja ítalska liðinu sætið og er að vonum ánægð með árangurinn.

„Það eru bara forréttindi og ég er bara ótrúlega stolt af liðinu og klúbbnum að hafa náð þessu markmiði, að hafa komist inn í Meistaradeildina.“

Hún segir að það hafi lengi verið markmið félagsins að komast í keppnina.

„Það hefur verið markmið hjá okkur í langan tíma og bara ótrúlega skemmtilegt að fá að bera sig við bestu lið í heimi. Við ætlum okkur stóra hluti.“

Cecilía hefur komið sér vel fyrir í Mílanó og segist njóta lífsins á Ítalíu.

„Já, bara geggjað sko. Ég elska Ítalíu,“ sagði hún létt í bragði.

Karólína Lea Vilhjálmsdóttir er einnig á mála hjá Inter og segir Cecilía hana hafa komið afar vel inn í liðið.

„Karólína hefur náttúrulega komið ótrúlega vel inn í þetta. Þetta er hennar annað tímabil og mitt þriðja. Hún er náttúrulega ótrúlega góður leikmaður og liðinu er að ganga vel og þá líður manni vel.“

Nýr þjálfari tók við Inter fyrir tímabilið og segir Cecilía að það hafi kallað á ákveðna aðlögun hjá leikmönnum liðsins.

„Það kom náttúrulega nýr þjálfari núna inn í þetta þannig að við höfum þurft svolítið að aðlagast því hvernig hann vill spila. En mér finnst við bara hafa gert það vel og erum báðar að spila mjög reglulega, sem er bara ótrúlega gott fyrir landsliðið líka.“

Cecilía er þessa dagana stödd á Íslandi með landsliðinu sem undirbýr seinni leikinn gegn Króatíu í umspili um sæti á heimsmeistaramótinu. Ísland vann fyrri leikinn 4-0 á útivelli og tekur á móti Króötum á Laugardalsvelli á morgun, þriðjudag klukkan 17:30.

Cecilía hélt að Hlín hefði skorað: „Ég sá bara Eiríksdóttir uppi á skjánum“

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.