Hafrún um systraeinvígið: „Það gæti alveg verið einhver keppni“

Hafrún Rakel Halldórsdóttir hafði gaman af því þegar systurnar Arna og Hlín Eiríksdætur létu til sín taka gegn Króatíu og útilokar ekki að smá markakeppni sé farin af stað á milli þeirra.

Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir

Systurnar Arna og Hlín Eiríksdætur skoruðu þrjú af fjórum mörkum Íslands í fyrri leik liðanna.

Mynd: Fótbolti.net - Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Landsliðskonan Hafrún Rakel Halldórsdóttir, segir að það gæti verið komin einhver keppni á milli systranna Örnu og Hlínar Eiríksdætra eftir stórsigur Íslands á Króatíu á föstudaginn.

Hafrún kann vel við sig í bakverðinum: „Mjög örugg með stelpurnar“
Arna byrjaði sinn fyrsta A-landsleik og gerði sér lítið fyrir og skoraði tvö mörk í 4-0 sigri Íslands. Eldri systir hennar, Hlín, komst einnig á blað og skoruðu systurnar því þrjú af fjórum mörkum íslenska liðsins.
Hafrún var spurð hvort einhver pressa væri nú komin á Hlín að skora fleiri mörk en litla systir í seinni leiknum á þriðjudaginn.
„Það gæti alveg verið að það sé einhver keppni. En ég held að það sé bara ógeðslega gaman fyrir þær að fá að upplifa þetta saman og við vorum allar ótrúlega ánægðar fyrir þær báðar,“ sagði Hafrún.
En er þá ekki komin pressa á Hafrúnu sjálfa að skora, fyrst Arna er farin að raða inn mörkunum úr bakvarðarstöðunni?
„Nei, ég er bara sátt og þetta gekk vel í síðasta leik þannig að vonandi aftur,“ sagði Hafrún og hló.
Ísland tekur á móti Króatíu á Laugardalsvelli á morgun, þriðjudag klukkan 17:30, og fer inn í leikinn með fjögurra marka forskot.
Hafrún vildi lítið gefa upp um hvort breytingar yrðu á leikskipulagi íslenska liðsins fyrir seinni leikinn.
„Það kemur allt í ljós,“ sagði hún létt í bragði.
Hún hafði svo skýr skilaboð til íslenskra stuðningsmanna:
„Bara mæta á völlinn, klárlega.“

Systurnar Arna og Hlín Eiríksdætur skoruðu þrjú af fjórum mörkum Íslands í fyrri leik liðanna.

Mynd: Fótbolti.net - Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson