12.10.26 - 09:48
Elvar Geir Magnússon
Lögreglumaður hlaut alvarlega áverka á Anfield

Fyrir utan Anfield í gær.

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Fyrir utan Anfield í gær.

Mynd: EPA
Lögreglumaður hlaut alvarlega áverka í andliti við handtöku á stórleik Liverpool og Manchester City í gær. Í yfirlýsingu lögreglunnar segir að maðurinn sé nú að ná bata heima fyrir eftir að hafa fengið meðferð á sjúkrahúsi.

TENGT EFNI
England: Man City vann tíu leikmenn Liverpool
Tíu einstaklingar voru handteknir í kringum leikinn á Anfield en þetta var fyrsti leikur City eftir að félagið var fundið sekt um alvarleg brot á fjárhagsreglum. City vann stórsigur á Liverpool 3-0, eftir stormasamar vikur.
Það var allt á suðupunkti kringum leikinn í gær og lögreglan beitti kylfum og piparúða þegar til átaka kom fyrir utan leikvanginn.
Yfirlögregluþjónninn Leanne Hobin sagði við Manchester Evening News:
„Lögreglumenn og gæslumenn eru þarna til að vernda almenning og tryggja öryggi. Það er mikill miður að lögreglumaður hafi hlotið alvarlega áverka við að sinna þessu hlutverki. Rannsókn á öllum atvikum málsins stendur yfir svo hægt sé að draga þá til ábyrgðar sem bera sök á glæpsamlegu athæfi," segir Hobin.

A few handbags outside the away end after the final whistle. Police had to move in and encircle the City fans as they left the ground. I saw at least one Liverpool fan pepper-sprayed by officers who also drew their batons, but they managed to maintain order https://t.co/6zpsjHWvMM
— Chris Slater (@chrisslaterMEN) October 11, 2026

Mynd: EPA