Moise Kean, framherji Everton, var ekki í leikmannahópnum gegn Southampton um helgina eftir agabrot. Sky Sports greinir frá.
Kean mætti of seint á liðsfund og Marco Silva, stjóri Everton, ákvað að hafa hann utan hóps í kjölfarið.
Þetta ku vera í annað skipti á tímabilinu sem hinn 19 ára gamli Kean mætir of seint á fund.
Kean mætti of seint á liðsfund og Marco Silva, stjóri Everton, ákvað að hafa hann utan hóps í kjölfarið.
Þetta ku vera í annað skipti á tímabilinu sem hinn 19 ára gamli Kean mætir of seint á fund.
Everton keypti Kean frá Juventus á 27 milljónir punda síðastliðið sumar en hann hefur ekki spilað mikið hingað til á tímabilinu.
Athugasemdir