mið 13. janúar 2021 20:38
Aksentije Milisic
Guardiola: Foden hefur sýnt að hann á skilið að spila
Mynd: Getty Images
Pep Guardiola, stjóri Manchester City, var ánægður með sína menn í kvöld þegar þeir unnu 1-0 heimasigur á Brighton.

Phil Foden gerði eina mark leiksins en sigurinn var aldrei í hættu. City gat skorað fleiri mörk en Bernardo Silva átti skot í stöng og þá klúðraði Raheem Sterling vítaspyrnu undir lok leiks.

„Þetta var góð kennslustund fyrir okkur. Margir leikir verða svona og við verðum að vinna svona leiki," sagði Pep.

„Við vorum öflugir í fyrri hálfleiknum og áttum færi. Eftir að við klúðruðum góðu færi í síðari hálfleik þá voru þeir betri. Þeir eru öflugt lið."

Guardiola hrósaði að lokum Foden en hann hefur verið að spila mjög vel fyrir lið City á þessari leiktíð.

„Hann er 20 ára, sjáðu tölfræði. Berðu saman leikina og stoðsendingarnar við aðra heimsklassa leikmenn. Hann getur spilað í mörgum stöðum og er snjall fyrir framan markið. Hann hefur sýnt að hann á skilið að spila hér."

City er komið í þriðja sæti ensku úrvalsdeildarinnar.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner