Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fim 13. janúar 2022 15:22
Elvar Geir Magnússon
Dómarinn sagður hafa fengið sólsting - Túnis sendir formlega kvörtun
Janny Sikazwe ku hafa fengið sólsting.
Janny Sikazwe ku hafa fengið sólsting.
Mynd: Getty Images
Fótboltasamband Túnis hefur skrifað formlega kvörtun til CAF, afríska fótboltasambandsins, þar sem dómari leiksins gegn Malí í Afríkukeppninni flautaði af þrettán sekúndum áður en 90 mínútur voru liðnar.

Malí var 1-0 yfir þegar Janny Sikazwe, dómari frá Sambíu, flautaði af. Áður hafði hann flautað leikinn af eftir 85 mínútur en gerði sér þá grein fyrir mistökunum og lét leikinn halda áfram.

Dómarasamband Afríku segir að ástæðan fyrir sérkennilegri dómgæslu Sikazwe hafi verið sú að hann hafi fengið sólsting. Hann hafi farið á sjúkrahús til að jafna sig eftir leikinn.

„Við gerum allt til að vernda rétt landsliðsins. Við erum ekki börn," sagði Hussein Jenaieh, stjórnarmaður hjá fótboltasambandi Túnis.

Ljóst er að uppbótartíminn í leiknum hefði átt að vera þónokkur enda voru skiptingar í hálfleiknum, tveir vítadómar, rautt spjald, farið í VAR skjáinn og vatnspása vegna hita.

Rúmlega 20 mínútum eftir leikinn var reynt að spila síðustu mínúturnar en fjórði dómari leiksins átti þá að taka við sem aðaldómari. Malí mætti út á völlinn en ekki Túnis.

„Dómarinn fékk sólsting sem hafði áhrif á ákvarðanir hans í leiknum. Eftir leikinn þurfti hann að fara á spítala því það var svo mikill hiti," sagði Essam Abdul Fattah hjá dómarasambandi Afríku.

„Það er ekki í boði að þetta gerist á þessu stigi leiksins í Afríku. Afrískur fótbolti getur ekki haldið áfram svona. Dómarinn skalf í dag. Hann hikaði meira að segja þegar hann ætlaði að skoða VAR skjáinn, hann vissi ekki hvernig hann kæmist í skjáinn," sagði Jalel Kadri, aðstoðarþjálfari Túnis.

Afríska fótboltasambandið segist vera að safna gögnum og geti ekki tjáð sig frekar um málið á meðan það er í skoðun.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner