Spænsk stórlið vilja Cucurella - Liverpool heldur áfram að reyna við Diomande - Arsenal hyggst fá Rogers og Kroupi
Steig inn þegar markvörðurinn fór til Liverpool - „Lífið er geðveikt"
Karólína nýtur sín í æðislegri borg - „Smá Ítalí í mér"
18 ára að festa sig í sessi - „Þarf að drífa mig upp á herbergi að plana atriði"
Orðsporið farið stækkandi í Svíþjóð - „Þetta er annað heimili mitt"
Átti að vera árið hans Sölva - „Víkingur væri að berjast í efri hlutanum í Superligunni"
Ætlar að berjast við Árna um stöðuna - „Þurfti aðeins að klípa mig“
Venni: Fótboltinn breytist ekkert þó ég kaupi einhverja menn eða við spilum með ákveðnum hætti
Ray: Ég held að það sé bara bjart framundan hjá okkur
Kári Kristjáns: Mér líður bara ógeðslega vel hérna
Sjáðu rauða spjaldið á Brynjar Björn - „Síðasti séns að sjá þetta trix"
Sterkastur í 9. umferð - „Þetta var upp á líf og dauða fyrir okkur“
Maggi er ósáttur með mark Fylkis: Boltinn var aldrei inni
Heimir: Þurfum að setjast niður og læra af þessu
Sölvi Geir: Það fór smá um mann
Seinn á fund í gær en skoraði þrennu í kvöld: Fokking mikil sekt
Hemmi: Helvíti ódýr mörk og einstaklingsmistök
Siggi Höskulds: Leikmenn Stjörnunnar vilja greinilega hafa Jökul í starfi
Halli: Þurfum að hugsa okkar gang
Gunnar Heiðar: Ég vissi ekki að við ætluðum allt í einu að setja inn gjafaleik FM
Jökull vísaði í leikplan Arsenal þegar hann hrósaði Þór
   mið 13. maí 2026 22:44
Viktor Ingi Valgarðsson
Gunnar Heiðar spenntur: Þetta er nýi núllpunkturinn
Gunnar Heiðar Þorvaldsson þjálfari HK
Gunnar Heiðar Þorvaldsson þjálfari HK
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

HK fékk verðugt verkefni í 16-liða úrslitum Mjólkurbikarsins í kvöld. Í Kórinn mætti Víkingur R. Leiknum endaði með 2-0 sigri gestana sem þýðir að bikargöngu HK er lokið þetta tímabilið.

Gunnar Heiðar var tapsár en stoltur af liði sínu eftir þennan leik sem Lengjudeildarlið gegn Íslandsmeisturum.


Lestu um leikinn: HK 0 -  2 Víkingur R.

Sagði það í síðasta viðtali, maður er í þessu til að vinna. Alveg sama hvaða liði við erum að mæta."

HK fór með 0-0 stöðu í hálfleik og ekki annað hægt en að sjá það jákvæða í því.

Planið okkar gekk eiginlega, næstum því, hér um bil upp. Við reyndum og ég er ánægður með attitudeið í strákunum, work ethicið frábært. Bara allt virkilega jákvætt fyrir utan náttúrulega að fá þessi mörk á okkur."

„Það dróg kannski aðeins úr okkur, við vorum ekki þessu einu skrefi nær þeim í sumum tilvikum. En við vorum að mæta Íslandsmeisturunum hérna og þeir unnu síðasta leik 6-0."

HK er því dottið úr bikarnum en allir fókus getur þá verið settur á Lengjudeildinna þar sem markmið liðsins eru há.

„Ég sagði einmitt við strákana, að þetta væri nýji núll punkturinn. Búnir að stíga upp í því sem við þurftum að gera betur. Þetta á bara eftir að verða betra og betra. Finn það líka á öllum hópnum að þeir eru til í þetta og hungraðir í góðan árangur."

Næsti leikur er í Lengjudeildinni og gegn Njarðvík en Gunnar Heiðar þjálfaði Njarðvík á síðustu leiktíð.

„Ég er spenntur fyrir öllum leikjum. Mér finnst deildin ógeðslega skemmtileg, unpredictible (ófyrirsjáanleg) og allir geta unnið alla. Ef maður er ekki á deginum sínum þá verður þér bara rasskellt alveg sama hvaða sæti hitt liðið er í. Ef allir eru ON IT þá eigum við góðan möguleika á að vinna hvort það sé Njarðvík eða eitthvað annað lið skiptir mig engu máli. Við ætlum að koma og vinna þá hér i Kórnum."

Viðtalið má sjá í heild sinni hér í spilaranum að ofan


Slapp
banner
banner