Spænsk stórlið vilja Cucurella - Liverpool heldur áfram að reyna við Diomande - Arsenal hyggst fá Rogers og Kroupi
Steig inn þegar markvörðurinn fór til Liverpool - „Lífið er geðveikt"
Karólína nýtur sín í æðislegri borg - „Smá Ítalí í mér"
18 ára að festa sig í sessi - „Þarf að drífa mig upp á herbergi að plana atriði"
Orðsporið farið stækkandi í Svíþjóð - „Þetta er annað heimili mitt"
Átti að vera árið hans Sölva - „Víkingur væri að berjast í efri hlutanum í Superligunni"
Ætlar að berjast við Árna um stöðuna - „Þurfti aðeins að klípa mig“
Venni: Fótboltinn breytist ekkert þó ég kaupi einhverja menn eða við spilum með ákveðnum hætti
Ray: Ég held að það sé bara bjart framundan hjá okkur
Kári Kristjáns: Mér líður bara ógeðslega vel hérna
Sjáðu rauða spjaldið á Brynjar Björn - „Síðasti séns að sjá þetta trix"
Sterkastur í 9. umferð - „Þetta var upp á líf og dauða fyrir okkur“
Maggi er ósáttur með mark Fylkis: Boltinn var aldrei inni
Heimir: Þurfum að setjast niður og læra af þessu
Sölvi Geir: Það fór smá um mann
Seinn á fund í gær en skoraði þrennu í kvöld: Fokking mikil sekt
Hemmi: Helvíti ódýr mörk og einstaklingsmistök
Siggi Höskulds: Leikmenn Stjörnunnar vilja greinilega hafa Jökul í starfi
Halli: Þurfum að hugsa okkar gang
Gunnar Heiðar: Ég vissi ekki að við ætluðum allt í einu að setja inn gjafaleik FM
Jökull vísaði í leikplan Arsenal þegar hann hrósaði Þór
banner
   mið 13. maí 2026 23:25
Elvar Geir Magnússon
Nauðsynlegur sigur fyrir framtíð Jökuls? - „Ég er raunverulega ekki að pæla í því“
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Stjarnan vann verðskuldaðan 2-1 sigur gegn KR í 16-liða úrslitum Mjólkurbikarsins í kvöld. Eftir fjóra tapleiki í röð í deildinni áttu Garðbæingar flotta frammistöðu sem skilaði sigri.

Jökull Elísabetarson kom í viðtal við Fótbolta.net eftir leik.

Lestu um leikinn: Stjarnan 2 -  1 KR

„Mér fannst við vinna fyrir þessu og eiga þetta skilið. Við vörðumst betur sem heild. KR er virkilega vel þjálfað lið," segir Jökull.

Stjarnan komst í 2-1 í fyrri hálfleik og KR klúðraði svo víti rétt fyrir hálfleiksflautið. Árni Snær markvörður varði.

„Það var léttir, töluverðar sveiflur í lokin og smá dramatík. Mér fannst fyrri hálfleikur vera algjörlega okkar en seinni hálfleikur jafnari, þeir voru aðeins betri en við stóðum okkur vel í að standa það af okkur."

Framtíð Jökuls hefur verið talsvert í umræðunni. Var þetta mikilvægur sigur fyrir þína framtíð?

„Ég pæli ekkert í því. Ég er raunverulega ekki að pæla í því. Eina sem ég pæli í er að þessi hópur nær því út úr sér sem býr í honum. Liðið nái að gera það sem við trúum að það geti gert. Dagurinn í dag, svo kemur örugglega sólin upp á morgun og þá förum við að pæla í þeim degi."

Viðtalið er í heild sinni í sjónvarpinu hér að ofan en þar tjáir Jökull sig meðal annars um framhaldið og Emil Atlason sem skoraði tvö mörk í kvöld.
Slapp
banner