Spænsk stórlið vilja Cucurella - Liverpool heldur áfram að reyna við Diomande - Arsenal hyggst fá Rogers og Kroupi
Steig inn þegar markvörðurinn fór til Liverpool - „Lífið er geðveikt"
Karólína nýtur sín í æðislegri borg - „Smá Ítalí í mér"
18 ára að festa sig í sessi - „Þarf að drífa mig upp á herbergi að plana atriði"
Orðsporið farið stækkandi í Svíþjóð - „Þetta er annað heimili mitt"
Átti að vera árið hans Sölva - „Víkingur væri að berjast í efri hlutanum í Superligunni"
Ætlar að berjast við Árna um stöðuna - „Þurfti aðeins að klípa mig“
Venni: Fótboltinn breytist ekkert þó ég kaupi einhverja menn eða við spilum með ákveðnum hætti
Ray: Ég held að það sé bara bjart framundan hjá okkur
Kári Kristjáns: Mér líður bara ógeðslega vel hérna
Sjáðu rauða spjaldið á Brynjar Björn - „Síðasti séns að sjá þetta trix"
Sterkastur í 9. umferð - „Þetta var upp á líf og dauða fyrir okkur“
Maggi er ósáttur með mark Fylkis: Boltinn var aldrei inni
Heimir: Þurfum að setjast niður og læra af þessu
Sölvi Geir: Það fór smá um mann
Seinn á fund í gær en skoraði þrennu í kvöld: Fokking mikil sekt
Hemmi: Helvíti ódýr mörk og einstaklingsmistök
Siggi Höskulds: Leikmenn Stjörnunnar vilja greinilega hafa Jökul í starfi
Halli: Þurfum að hugsa okkar gang
Gunnar Heiðar: Ég vissi ekki að við ætluðum allt í einu að setja inn gjafaleik FM
Jökull vísaði í leikplan Arsenal þegar hann hrósaði Þór
   mið 13. maí 2026 23:04
Elvar Geir Magnússon
Óskar Hrafn vanur því að detta úr bikar: Lífið heldur áfram
Óskar Hrafn segir KR hafa bankað of laust.
Óskar Hrafn segir KR hafa bankað of laust.
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
KR-ingar sem eru með fullt hús í Bestu-deildinni eru fallnir úr leik í bikarnum eftir 2-1 tap gegn Stjörnunni í Garðabæ í 16-liða úrslitum. KR vann viðureign þessara liða í deildinni á föstudag en nú voru það heimamenn sem fögnuðu.

Óskar Hrafn Þorvaldsson þjálfari KR fór því í fyrsta sinn í viðtal eftir tapleik þetta sumarið.

Lestu um leikinn: Stjarnan 2 -  1 KR

„Það er bara eins og það er. Við erum ekki ósigrandi. Við vissum að það kæmi að tapleik. Það var týpískt að það kæmi núna gegn góðu Stjörnuliði eftir að hafa unnið þá í deildinni. Ég er ekki endilega að fara að missa svefn yfir þessu," segir Óskar.

„Það sem vantaði í mínu liði var meiri orka, meiri áræðni og grimmd á síðasta þriðjungi. Orkustigið var of lágt. Mér fannst við ekki gera nóg, mér fannst Stjarnan vera sterkari aðilinn í fyrri hálfleik. Auðvitað ráðum við stórum hluta seinni hálfleiks. Mér fannst samt alltaf vanta meiri hraða í sóknarleikinn og meiri áræðni."

Stjarnan komst í 2-1 í fyrri hálfleik en í blálok hálfleiksins fékk KR vítaspyrnu. Aron Sigurðarson klúðraði vítinu og Alexander Rafn Pálmason klúðraði svo dauðafæri í kjölfarið. Var það vendipunktur?

„Nei, ég myndi ekki segja það. Við vorum 2-0 undir á föstudaginn í hálfleik en það gekk ágætlega í seinni hálfleik. Auðvitað hefði verið ljúft að jafna leikinn en það hefði ekki verið sanngjarnt að það hefði verið jafnt í hálfleik. Við þurfum einfaldlega að gera betur. Ég hef líka skilning á því að mannskepnan getur átt daga þar sem hlutirnir ganga ekki upp."

„Ég er alveg vanur því að detta út úr bikarnum og ég veit að lífið heldur áfram. Auðvitað hefði verið gaman að vinna þennan leik en mér fannst Stjarnan bara eiga þetta meira skilið. Við gerðum ekki nægilega mikið."

Viðtalið er í heild sinni í sjónvarpinu hér að ofan en þar talar Óskar meðal annars um stöðuna á hópnum. Finnur Tómas Pálmason fór af velli í dag eftir höfuðhögg og Arnór Ingvi Traustason og Ástbjörn Þórðarson voru ekki í hóp í kvöld.
Slapp
banner