Kim Hellberg, stjóri Middlesbrough, segir hegðun Southampton fyrir einvígi liðanna í undanúrslitum umspilsins hafa brotið í honum hjartað.
Middlesbrough er úr leik í umspilinu eftir 2-1 tap á St. Mary's í gær en aðal umræðuefnið í kringum einvígið var fyrir fyrri leikinn sem fór fram á Riverside.
Boro hefur ásakað Southampton um að hafa sent njósnara til að fylgjast með æfingum liðsins. Sá maður hafi einnig tekið upp æfinguna áður en starfsmaður Boro tók eftir honum. Njósnari Southampton hafi síðan skipt um föt og látið sig hverfa.
Málið er til rannsóknar hjá EFL-sambandinu og ef Southampton verður fundið sekt um njósnir gæti það verið dæmt úr umspilinu og myndi Boro taka sæti þeirra.
Hellberg var spurður út í þetta sérkennilega mál eftir tapið gegn Southampton í gær.
„Ég hef unnið sem þjálfari í fimmtán ár og á þeim tíma reynt að komast í ensku úrvalsdeildina. Það hefur verið draumur minn allan þjálfaraferilinn. Ég veit að það eru félög sem eru með meira fjármagn eða fallhlífargreiðslur sem geta eytt meiri peningum. Það eru líka félög sem eru með stærri leikmannahópa en við og geta eytt töluvert hærri fjárhæðum.“
„Það sem þú ert með sem þjálfari og sem leikmannahópur er taktíski þáttur leiksins um að við getum unnið mótherjann og það er nákvæmlega það sem allir elska við leikinn. Þess vegna horfi ég á Englandi og hugsa um það sem heimili fótboltans. Það er staðurinn sem ég vil vera á og það sem ég dreymi um. Þið eruð svo stolt af fótboltanum ykkar og ég elska það.“
„Þegar félögin hafa meira fjármagn og allt þetta þá reynir þú að finna leiðir til þess að ná forskoti á þau. Það er það sem ég reyna að segja við liðið mitt. Maður reynir allt því við getum alltaf bætt okkur á því sviði.
„Alex Neil lét áhugaverð ummæli falla eftir Millwall-leikinn þar sem hann sagðist hafa brugðist fólki með að hafa ekki unnið. Það er oft tilfinningin sem þjálfari fer heim með því maður hugsar að það eina sem maður getur stjórnað er taktíski þáttur leiksins eða hjálpa leikmönnum meira.“
„Þegar þú hefur gert það í eina eða tvær vikur ram að leiknum þá eyðir þú öllum stundum frá fjölskyldunni til að horfa á leiki með Southampton til þess að reyna að ná forskoti og ef við hefðum ekki gómað manninn sem þeir sendu í fimm tíma akstur þá myndi maður sitja hérna og segja 'vel gert varðandi taktíska hluta leiksins og farið síðan heim og liðið eins og maður hefði klikkað á þeim þætti sem ég þurfti að hjálpa leikmönnum mínum með.“
„Þegar þetta er tekið frá þér á þennan hátt, þegar einhver ákveður 'Nei, við ætlum ekki að horfa á hvern einasta leik heldur munum við frekar senda einhvern til að taka upp æfingarnar, sjá allt og vonandi ekki vera gómaðir'. Ég giska á það sé ástæðan fyrir að þeir voru að skipta um föt og allt það.“
„Þetta brýtur í mér hjartað þegar það kemur að öllu sem ég trúi á. Það er heila málið.“
„Mér er sama ef reglurnar eru öðruvísi í öðrum löndum. Þetta er England þar sem fótboltinn er aðalmálið.“
„Þannig líður mér með þetta. Mér finnst þetta skammarlegt og þetta gerir mig mjög leiðan,“ sagði hann í lokin.



