Fotbolti.net
13.05.26 - 09:00
Brynjar Ingi Erluson

Stjóri Southampton gekk út af fréttamannafundi í annað sinn - „Sýndu smá virðingu“

Tonda Eckert

Tonda Eckert

Canon

Mynd: EPA

Tonda Eckert, stjóri Southampton, rauk út af fréttamannafundi eftir 2-1 sigur liðsins á Middlesbrough í umspili ensku B-deildarinnar í gær.

Southampton mun leika til úrslita um sæti í ensku úrvalsdeildina eftir níu daga.

Shea Charles gerði sigurmark Southampton í seint í framlengingunni er fyrirgjöf hans fór í gegnum vörn Middlesbrough og hafnaði í fjærhorninu.

Southampton-menn fögnuðu í leikslok, en stjóri liðsins var þó ekkert sérstaklega glaður þegar hann yfirgaf leikvanginn eftir yfirheyrslu fjölmiðla á fréttamannafundinum.
Southampton biður um meiri tíma í njósnamálinu
TENGT EFNI

Southampton biður um meiri tíma í njósnamálinu

Á dögunum kom upp sérstakt mál þar sem Southampton var sakað um að hafa njósnað á æfingasvæði Middlesbrough fyrir einvígið. Samkvæmt Boro á starfsmaður félagsins að hafa séð starfsmann Southampton fylgjast með og taka upp æfingu hjá Boro, en málið er til rannsóknar hjá EFL-sambandinu.

Á fundinum spurði Dominic Shaw hjá Northern Echo Ecker að því hvort hann og Southampton væru svindlarar. Fjölmiðlafulltrúi Southampton bað blaðamenn um að sýna virðingu áður en hann og Eckert yfirgáfu svæðið.

Þetta er í annað sinn sem Eckert gengur út af fréttamannafundi en hann gerði það sama eftir leikinn á laugardag.

Times segir að ef EFL-deildin kemst að þeirri niðurstöðu að Southampton hafi brotið reglur þá gæti félagið verið dæmt úr leik í umspilinu og þá myndi Middlesbrough taka sætið. EFL-sambandið mun reyna að ljúka rannsókn málsins fyrir úrslitaleikinn sem fer fram 22. maí næstkomandi.

Stjóri Southampton gekk út af fréttamannafundi í annað sinn - „Sýndu smá virðingu“
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.