Mjólkurbikarinn: Fylkir í undanúrslit eftir framlengdan háspennuleik

Kári Sigfússon og félagar í Fylki eru komnir í undanúrslit

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fylkir 4 - 2 Grótta
0-1 Tristan Freyr Ingólfsson ('45 )
1-1 Caden Robert McLagan ('90 , sjálfsmark)
2-1 Aron Snær Guðbjörnsson ('102 )
2-2 Caden Robert McLagan ('107 )
3-2 Orri Sveinn Segatta ('112 )
4-2 Kári Sigfússon ('118 )
Lestu um leikinn

Fylkismenn hafa bókað sæti sitt í undanúrslitum Mjólkurbikarsins eftir ótrúlegan 4-2 sigur á Gróttu á tekkVellinum í dag.
Árbæingar voru sterkari aðilinn í fyrri hálfleiknum þó Grótta hafi byrjað aðeins betur.
Þeir settu meira púður í leik sinn eftir rúmlega sjö mínútur og voru líklegri eftir það, en Guðmundur Rafn Ingason var að eiga flottan dag í markinu enda fullkomið tilefni til þess að stíga upp.
Á lokasekúndum fyrri hálfleiks kom fyrsta markið og það gerði Tristan Freyr Ingólfsson.
„Það er Tristan Freyr sem skorar fyrsta markið hér í dag! Það kemur langur bolti frá Guðmundi Rafni markverði út á vinstri kantinn þar sem Tristan tekur boltann, tekur menn á og skýtur rétt fyrir utan teig framhjá Ólafi í markinu. Glæsilegt mark!“ skrifaði Gylfi Már Þórðarson í textalýsingu sinni hér á Fótbolta.net.
Fylkismenn pressuðu stíft í síðari hálfleik. Þeir vildu fá vítaspyrnu á 63. mínútu en Jóhann Ingi Jónsson, dómari leiksins, var á því að Gróttumaðurinn hefði náð boltanum fyrst.
Tveimur mínútum síðar átti Dagur Traustason skalla sem fór í þverslá áður en hann fékk boltann aftur, en Guðmundur Rafn handsamaði seinni tilraunina nokkuð örugglega.
Grótta fékk dauðafæri til þess að gera út um leikinn stundarfjórðungi fyrir leikslok. Axel Sigurðarson komst upp að endalínu og sendi boltann á Mattías Kjeld, sem fékk Ólaf Kristófer Helgason á móti sér en lagði boltann til hliðar á Kristófer, sem skaut yfir.
Seltirningar höfðu gert vel að halda Fylki í skefjum en fengu síðan á sig grátlegt jöfnunarmark undir lokin þegar Arnar Númi Gíslason kom boltanum fyrir og boltinn fór af Caden Robert McLagan og í eigið net.
Þetta gaf Fylkismönnum mikla orku fyrir framlenginguna. Þeir sóttu stíft að marki Gróttu og uppskáru loks mark á 102. mínútu þegar Aron Snær Guðbjörnsson skallaði sendingu Kára Sigfússonar í netið, sem bætti svo sannarlega upp fyrir klúður sem hann átti stuttu fyrir markið.
Snemma í síðari hluta framlengingarinnar jafnaði McLagan og bætti upp fyrir sjálfsmarkið. Grótta fékk tvær hornspyrnur í röð og úr þeirri síðari náði McLagan að setja boltann í netið.
Fylkismenn reyndust of sterkir á lokakafla framlengingarinnar. Orri Sveinn Segatta skoraði eftir aukaspyrnu Kára og á 118. mínútu kórónaði Kári frábæran leik sinn með marki sem fleytti Fylki áfram í undanúrslitin.
Fylkir mætir Aftureldingu í undanúrslitunum á meðan Breiðablik og Víkingur mætast í hinum undanúrslitaleiknum.