Jón Óli sáttur: Ekki spenntur fyrir heimsókn bræðrana en lofa það verður ekki markalaust

Jón Ólafur Daníelsson þjálfari ÍBV

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Jón Ólafur Daníelsson þjálfari ÍBV

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

8.umferð Bestu Deildar Kvenna var leikin í dag. ÍBV fór í Laugardalinn á AVIS-völlinn og mætti heimakonum í Þrótti. Liðin eru á mjög svipuðum stað á töflunni og þrjú stig hefðu getað verið dýrmæt en 0-0 jafntefli var niðurstaðan.
Jón Óli var til taks í viðtal eftir leik og hafði þetta að segja um fyrsta leikinn eftir tveggja vikna landsleikjahlé. „Leikurinn var svona, mjög mikil barátta og já svona vöntun á gæðum. Brá fyrir á ágæsti spilköflum en svolítið mikið fram og tilbaka. Oft slitið og þá sérstaklega mitt lið. Ég persónulega er bara mjög sáttur með þetta jafntefli, hefði verið gott að komast yfir þarna snemma í fyrri hálfleik en miðað við færin í leiknum í heild sinni þá held ég að við getum gengið sáttar frá borði."
Guðný Geirsdóttir var klárlega maður leiksins í dag. Hún átti frábæra tvöfalda vörslu rétt fyrir lok fyrri hálfleiks og síðan í lok leiks tók hún annan mjög mikilvægan bolta. „Hún er bara búin að vera frábær, tók þokkalegar vörslur á móti Stjörnunni líka. Skulum hafa það í huga að hún er í markinu til þess að gera þetta." sagði Jón Óli um frammistöðu hennar í dag brosandi.
Framundan er alvöru verkefni hjá ÍBV þar sem þær fá FH-liðið í heimsókn til Vestmannaeyja en það er leikur í 8-liða úrslitum Mjólkurbikarins.
„Já já ég er spenntur fyrir leiknum, ég er ekkert sérstaklega spenntur fyrir að fá blessuðu bræðurna (Guðni og Hlynur Eiríkssynir þjálfarar FH) í heimsókn. Hörkuleikur og ég get lofað þér því að það verður ekki markalaus leikur, það er alveg ljóst."
Viðtalið í heild sinni má sjá í spilaranum hér að ofan.






