Courtois: Munu þurfa að finna arftaka fyrir mig

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Belgíski landsliðsmarkvörðurinn Thibaut Courtois er af mörgum talinn vera einn af allra bestu markvörðum heims í dag.
Hann er aðalmarkvörður hjá Real Madrid og aðeins með eitt ár eftir af samningi.
Courtois er 34 ára gamall og skrifaði undir núverandi samning sinn í fyrra. Hann er staddur með belgíska landsliðinu sem keppir á heimsmeistaramótinu og var spurður út í framtíð sína hjá Real Madrid.
„Real Madrid gefur leikmönnum yfir þrítugt aðeins eins árs samninga, þannig að ég er mjög rólegur. Svo lengi sem ég held áfram að spila vel eins og ég hef verið að gera þá verður þetta ekkert vandamál," sagði Courtois, sem áttar sig þó á því að hann getur ekki varið mark stórveldisins að eilífu.
„Real Madrid er fótboltafélag í heimsklassa og á einhverjum tímapunkti munu þeir þurfa að finna arftaka fyrir mig. Það er augljóst."

TENGT EFNI
Kraftröðunin fyrir HM: Frændur vor og leifar af gullkynslóð

Mynd: EPA