Orkus: Ég fór heim en saknaði Íslands

Ashley Brown Orkus var besti leikmaður Fram þrátt fyrir 2-0 tap gegn Grindavík/Njarðvík

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ashley Brown Orkus var besti leikmaður Fram þrátt fyrir 2-0 tap gegn Grindavík/Njarðvík

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ashley Brown Orkus, markvörður Fram, var svekkt eftir 2-0 tap liðsins gegn Grindavík/Njarðvík í 8. umferð Bestu deildarinnar í dag. Þrátt fyrir úrslitin átti hún sterkan leik á milli stanganna og hélt Fram liðinu vel inn í leiknum með frábærrum vörslum.
„Svekkjandi. Það er alltaf erfitt að tapa, sama hvernig einstaklingum gengur. Við erum svolítið föst í lægð sem lið þessa stundina en hlökkum til að finna leið út úr henni. Við þurfum bara að halda áfram að spila okkar leik, ekki hafa of miklar áhyggjur af því á móti hverjum við erum að spila og þá verðum við í lagi.“ svaraði Ashley aðspurð um tilfinninguna eftir leikinn.
Að hennar mati var munurinn á liðunum fyrst og fremst sá að Grindavík/Njarðvík sýndi meiri baráttuvilja.
„Satt að segja fannst mér þær bara vilja þetta aðeins meira en við. Fram hefur alltaf verið lið sem hefur státað sig af mikilli baráttu en hún var ekki alveg til staðar hjá okkur í dag eins og hún hefði þurft að vera.“
Fram kom inn í leikinn eftir landsleikjahlé og Ashley nýtti pásuna til að heimsækja fjölskylduna sína.
„Ég náði eiginlega bara að aftengja mig aðeins. Ég fór heim og hitti fjölskylduna mína og það var frábært að sjá hana aftur.“
„Það fyndna er að ég saknaði Íslands. Það var gott að taka smá pásu. Við fengum nokkra frídaga sem lið, komum svo saman aftur á mánudaginn og höfum verið að vinna hörðum höndum síðan.“
Ashley hefur nú komið þrisvar sinnum til Íslands og segist hvergi annars staðar vilja vera.
„Ég elska Ísland. Besta deildin er besta deildin.“
„Þetta er í þriðja skiptið sem ég kem hingað. Ég var með Fram síðasta einn og hálfan mánuðinn á síðasta tímabili og áður spilaði ég með FHL. Ég virðist bara alltaf enda aftur á Íslandi. Mér líður mjög vel hérna, fólkið er frábært og þegar sólin skín er veðrið líka frábært.“
Fram mætir Stjörnunni í næstu umferð en Ashley segir liðið taka eitt verkefni fyrir í einu.
„Við tökum einn leik í einu. Mikilvægasti leikurinn er alltaf sá næsti.“
„Núna þegar Grindavík/Njarðvík-leikurinn er búinn þá er Stjörnuleikurinn orðinn mikilvægastur. Við byrjum að undirbúa okkur fyrir hann þegar við mætum aftur á æfingu á morgun.“


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð






