Fotbolti.net
13.07.17 - 15:15
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Knattspyrnuskóli Gaman Ferða - Mikið fjör í Leifsstöð í nótt

Auglýsing
Knattspyrnuskóli Gaman Ferða - Mikið fjör í Leifsstöð í nótt
Canon

Mynd: Gaman Ferðir

Hertz
Á næstu vikum verða 80 stelpur í Knattspyrnuskóla Gaman Ferða í Hollandi.

Starfsmenn Gaman Ferða vildu gera eitthvað skemmtilegt í Hollandi á sama tíma og EM væri í gangi og fengu því Daða Rafnsson, aðstoðarþjálfara Jiangsu Suning í Kína, til að setja saman þennan knattspyrnuskóla en skólinn er sérstaklega ætlaður stelpum á aldrinum 13-16 ára. Það er alveg á hreinu að honum tókst afar vel til að setja saman þennan skóla enda eru afar færir þjálfarar sem koma í heimsókn og sjá um æfingar.
Stelpurnar munu æfa tvisvar á dag undir leiðsögn frábærra þjálfara en, Mist Rúnarsdóttir mun stjórna ferðinni. Hún er með UEFA A þjálfaragráðu. Henni til halds og trausts verða Guðlaug Björk Eiríksdóttir og Hulda Hlín Ragnars.

Aðrir þjálfarar í skólanum eru meðal annars Jessica Torny, núverandi U19 landsliðsþjálfari Hollands og fyrrum aðstoðarþjálfari A landsliðs Hollands. Einnig koma aðrir þjálfarar frá hollenska knattspyrnusambandinu og verða með stelpurnar í einn dag.

Chris Heck verður líka með nokkrar æfingar, en hann er þjálfari U17 ára liðs FFC Frankfurt. Það lið ásamt Lyon frá Frakklandi hefur unnið flesta Evróputitla í kvennaknattspyrnunni.

Pauliina Miettinen kemur einnig í heimsókn, en hún er fyrrum þjálfari Sky Blue í bandarísku atvinnumannadeildinni. Hún lék bæði sem markmaður og varnarmaður fyrir landslið Finnlands á sínum tíma. Í millitíðinni setti hún markamet sem markaskorari í bandarísku háskóladeildinni.

Svo má ekki gleyma Úlfari Hinrikssyni, en hann er yfirmaður afreksstarfs hjá Breiðablik og fyrrum U17 landsliðsþjálfari kvenna.

Einnig verður farið í skemmtigarð og verslunarferð í þessum knattspyrnuskóla og síðast en ekki síst mun hópurinn fara á leiki Íslands á EM í Hollandi. Það má því búast við flottum stuðningi frá framtíðarleikmönnum íslenska landsliðsins í stúkunni í Hollandi á næstu vikum.

Í nótt fór fyrri hópurinn til Hollands og það er ekki hægt að segja annað en að hópurinn hafi verið í stuði enda skemmtilegir dagar framundan.
Knattspyrnuskóli Gaman Ferða - Mikið fjör í Leifsstöð í nótt
Canon

Mynd: Gaman Ferðir

Knattspyrnuskóli Gaman Ferða - Mikið fjör í Leifsstöð í nótt
Canon

Mynd: Gaman Ferðir

Knattspyrnuskóli Gaman Ferða - Mikið fjör í Leifsstöð í nótt
Canon

Mynd: Gaman Ferðir

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.