Jón Dagur Þorsteinsson var valinn í lið mánaðarins í dönsku úrvalsdeildinni fyrir júnímánuð.
Það ætti að koma fáum á óvart þar sem Jón Dagur átti virkilega góðan mánuð með liði sínu AGF í Árósum.
Hann spilaði einn sinn besta leik á ferlinum, ef ekki þann besta, þann 21. júní þegar hann skoraði þrennu og lagði upp eitt í 4-3 sigri á meisturunum í Midtjylland.
Í umfjöllun staðarblaðsins í Árósum að nafni Stiften fékk Jón Dagur mikið hrós fyrir frammistöðu sína og tíu í einkunn.
Jón Dagur lagði upp mark þegar AGF vann 3-0 sigur á Midtjylland í gær.
Hér að neðan má sjá lið mánaðarins.
Jón Dagur Þorsteinsson (1998) in the Team of the Month in the Danish Superliga 🇮🇸⭐️👌 pic.twitter.com/TmDkMHWFle
— Magnus Agnar Magnusson (@totalfl) July 12, 2020
Athugasemdir