Fotbolti.net
19.06.26 - 10:51
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

„Það sjá allir hversu hungraður Gylfi er"

Í myndatöku eftir leikinn.

Í myndatöku eftir leikinn.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Gylfi Þór Sigurðsson var valinn maður leiksins eftir leik Víkings gegn KR á þriðjudagskvöld.

Gylfi, sem framlengdi samning sinn við Víking fyrr um daginn, hefur átt mjög gott tímabil og hefur mögulega verið besti leikmaður deildarinnar til þessa.

Sölvi Geir Ottesen, þjálfari Víkings, var spurður út í Gylfa í viðtali eftir leik.
Gríðarlegur munur á frammistöðu Gylfa
TENGT EFNI

Gríðarlegur munur á frammistöðu Gylfa

Lestu um leikinn: Víkingur R. 2 - 0 KR
„Geggjað að halda þeim (Gylfa og Karli Friðleifi Gunnarssyni sem framlengdi líka), þetta eru hrikalega öflugir leikmenn og mikilvægir fyrir Víking. Þetta eru gleðifréttir fyrir okkur Víkinga."

„Það sjá allir hversu hungraður Gylfi er, hungraður til þess að spila áfram og gleðin skín af honum hérna í Víkinni. Hann er kominn á góðan stað þar sem honum líður vel á. Ég get alveg skilið að það hafi verið auðvelt fyrir hann að endursemja,"
sagði Sölvi við Fótbolta.net eftir leikinn.

Gylfi er fæddur 1989 og kom til Víkings frá Val fyrir tímabilið í fyrra og hjálpaði liðinu að verða Íslandsmeistari síðasta haust. Hann er markahæsti leikmaður í sögu landsliðsins og hefur verið í öllum landsliðshópum Arnars Gunnlaugssonar þar sem af er ári.

Næsti leikur Víkings er toppslagur gegn Fram á útivelli á sunnudagskvöld.
„Það sjá allir hversu hungraður Gylfi er"
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Gylfi: Sneggstu samningsviðræður ferilsins

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Víkingur R.14+3940
2KR14+1429
3Fram13+727
4Breiðablik13+722
5Valur14-319
6Keflavík13-616
7Stjarnan14-315
8ÍBV13-415
9ÍA13-815
10KA13-910
11FH13-138
12Þór13-218
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.