Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   þri 13. júlí 2021 18:24
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Byrjunarlið HK og Víkings: Kristall inn - Leifur áfram á bekk
Kristall kemur inn.
Kristall kemur inn.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Leifur er áfram á bekknum.
Leifur er áfram á bekknum.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Það er áhugaverður slagur í Kórnum í kvöld þegar HK og Víkingur Reykjavík eigast við í Pepsi Max-deildinni.

Smelltu hér til að fara í beina textalýsingu.

Víkingur getur með sigri eða jafntefli komist upp fyrir Breiðablik í öðru sæti. HK getur komið sér úr fallsvæðinu með sigri í kvöld.

Byrjunarliðin eru klár og má sjá þau bæði hér að neðan. HK breytir engu frá sigurleiknum gegn Fylki. Leifur Andri Leifsson vermir áfram varamannabekkinn.

Síðasti leikur Víkings var sigurleikur gegn ÍA. Helgi Guðjónsson dettur út úr liðinu frá þeim leik og kemur Kristall Máni Ingason inn.

Byrjunarlið HK:
25. Arnar Freyr Ólafsson (m)
5. Guðmundur Þór Júlíusson (f)
6. Birkir Valur Jónsson
7. Birnir Snær Ingason
8. Arnþór Ari Atlason
11. Ólafur Örn Eyjólfsson
17. Jón Arnar Barðdal
18. Atli Arnarson
21. Ívar Örn Jónsson
28. Martin Rauschenberg
30. Stefan Alexander Ljubicic

Byrjunarlið Víkings:
16. Þórður Ingason (m)
7. Erlingur Agnarsson
10. Pablo Punyed
12. Halldór Smári Sigurðsson
13. Viktor Örlygur Andrason
17. Atli Barkarson
20. Júlíus Magnússon
21. Kári Árnason (f)
22. Karl Friðleifur Gunnarsson
23. Nikolaj Hansen
80. Kristall Máni Ingason
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner