Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   þri 13. júlí 2021 07:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Guðmundur Steinn ekki með í kvöld en gæti náð næsta leik
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Framherjinn Guðmundur Steinn Hafsteinsson gekk í raðir Fylkis á dögunum en er ekki kominn til landsins.

Hann fékk leikheimild í síðustu viku og var ekki með Fylki gegn HK á föstudag.

Atli Sveinn Þórarinsson, annar af þjálfurum Fylkis, var til viðtals eftir leikinn á föstudag.

Guðmundur Steinn í Fylki (Staðfest)

„Hann kemur til landsins ca. 16. júlí þannig fljótlega eftir það," sagði Atli Sveinn.

Guðmundur Steinn verður því ekki með Fylki í kvöld gegn KA en gæti verið með Fylki þegar liðið mætir FH á sunnudag.
Atla fannst Fylkir eiga meira skilið: Ég er hlutdrægur
Athugasemdir
banner
banner