Fotbolti.net
12.07.26 - 18:20
Ívan Guðjón Baldursson

Alvarez: Viljum vinna þetta mót fyrir Messi

Alvarez: Viljum vinna þetta mót fyrir Messi
Canon

Mynd: EPA

Julián Alvarez var hetjan þegar Argentína sló Sviss úr leik í 8-liða úrslitum heimsmeistaramótsins síðustu nótt.
Alvarez byrjaði við hlið goðsagnarinnar Lionel Messi í fremstu víglínu og skoraði glæsilegt mark til að taka forystuna í framlengingunni.

„Þetta var erfiður leikur og við þjáðumst á köflum en svona er fótboltinn, maður verður að kunna að þjást. Við mættum sterkum andstæðingum og erum ánægðir að vera komnir í undanúrslitin. Auðvitað er ýmislegt sem við megum bæta við okkar leik en hópurinn er mjög samheldinn og við erum hungraðir í meiri árangur," sagði Alvarez að leikslokum.

„Við munum leggja allt í sölurnar til að vinna þetta mót. Við viljum vinna þetta HM fyrir Messi, hann á skilið að vinna aftur. Í hverjum einasta leik berjumst við fyrir hann.

„Núna verðum við að hvíla okkur og setja alla einbeitingu á næsta leik. Það eru tveir leikir eftir og við munum gefa okkur alla í verkefnið. Við erum að mæta mjög sterkum andstæðingum í næsta leik."


Messi gaf stoðsendingu gegn Sviss en komst ekki sjálfur á blað. Hann er þó búinn að skora 8 mörk í 6 leikjum á heimsmeistaramótinu í ár.

HM: Argentína í undanúrslit eftir sigur í framlengingu gegn tíu Svisslendingum
TENGT EFNI

HM: Argentína í undanúrslit eftir sigur í framlengingu gegn tíu Svisslendingum

Alvarez: Viljum vinna þetta mót fyrir Messi
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.