Fotbolti.net
13.08.26 - 17:57
Brynjar Ingi Erluson

Chelsea lánar Badiashile til Napoli

Chelsea lánar Badiashile til Napoli
Canon

Mynd: Chelsea

Chelsea hefur samþykkt að lána franska varnarmanninn Benoit Badiashile til Napoli út þetta tímabil.
Félögin hafa rætt um Badiashile undanfarna vikur og hefur Fabrizio Romano nú sett sitt fræga „Here we go!“ við félagaskiptin.

Hinn 25 ára gamli miðvörður kemur til Napoli á láni út tímabilið. Ítalska félagið greiðir þrjár milljónir evra fyrir lánsdvölina og getur keypt hann fyrir 27 milljónir evra á meðan henni stendur.

Badiashile er annar miðvörðurinn sem yfirgefur Chelsea í sumar á eftir Trevoh Chalobah.

Xabi Alonso, stjóri Chelsea, vinnur nú að því að fækka í fjölmennum leikmannahópnum fyrir tímabilið.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.