Einkunn hvers liðs fyrir sumargluggann

Jason Daði gekk í raðir KR.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Sveinn Aron var tilkynntur sem nýr leikmaður Víkings í vikunni.

Mynd: Víkingur

Spilaði sinn fyrsta leik fyrir Víking um síðustu helgi.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Vatnhamar er á förum frá Víkingi.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Sölvi Stefánsson er efnilegur hafsent.

Mynd: AGF

Amin var seldur til Viking Stavanger.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Alexander Rafn fór til Nordsjælland.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Sölvi Snær var keyptur frá Grindavík.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Framarar sótt lítið en sótt rétt.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kallaður til baka úr láni frá ÍR.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Samningur Hlyns við Brommapojkarna rennur út um áramótin.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mættur aftur í Blika.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Farinn til Króatíu.

Mynd: Slaven Belupo

Keyptur frá Leikni.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Var frábær með Keflvíkingum.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mate er spennandi leikmaður.

Mynd: Standard Liege

Elvis.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Keyptur frá Stjörnunni.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Árni kom frá Sádí.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ari Leifsson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Aron Lucas Vokes.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Eyjamenn styrktu liðið lítið.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

ÍA keypti Jón Sölva á undanþágu frá KSÍ.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Gengur til liðs við Skagamenn eftir tímabil.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Adam Ægir var keyptur til KA.

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Andre Römer, yngri bróðir Marcel Römer.

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Oliver Stefánsson hefur komið frábærlega inn í lið FH.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Á láni frá Víkingi.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Heldur kyrru fyrir í Hafnarfirði.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Reynst Þórsurum vel.

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Vazquez er með góða ferilskrá.

Mynd: Akureyri.net/Ármann Hinrik

Þorri Ingólfsson.

Mynd: Akureyri.net/Ármann Hinrik

Jason Daði gekk í raðir KR.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Flest lið nýttu tækifærið og styrktu sig vel í sumarglugganum á meðan önnur misstu lykilmenn.
Fótbolti.net tók saman helstu sigurvegara og tapara sumargluggans og gaf þeim einkunn, frá núll upp í tíu. Var þar litið til styrkingar sem kemur inn gegn því sem fór út.

Svona var glugginn í Bestu deildinni
Víkingur R. - 6
Víkingar nýttu gluggan vel og urðu töluverðar breytingar á hópnum. Þeir byrjuðu fyrr en flestir á markaðinum en þeim var veitt undanþága frá KSÍ áður en að glugginn opnaði til að fá Ögmund Kristinsson inn vegna veikinda Ingvars Jónssonar.
Þá kölluðu þeir Svein Margeir Hauksson til baka frá KA úr láni og Sölvi Stefánsson kom aftur heim í Víkina frá AGF. Sölvi er að snúa til baka eftir krossbandaslit og er búist við að hann geti komið inn í leikmannahóp Víkings í náinni framtíð.
Á síðastliðinni viku hefur félagið tilkynnt um komu tveggja leikmanna sem koma að utan, þá Hrannar Snæ og Svein Aron og munu þeir koma til með að styrkja sóknarlínuna. Sveinn hefur ekkert spilað síðan í apríl og er ljóst að það mun taka hann einhvern tíma að ná upp leikformi.
Liðið mun koma til með að missa meira en það styrkir sig en Gunnar Vatnhamar er á förum frá félaginu til Vejle í Danmörku. Þá sleit Elías Már Ómarsson krossband fyrir um mánuði síðan. Óskar Borgþórsson og Tarik Ibrahimagic verða einnig báðir frá til lengri tíma.
Þá sendu Víkingar þá Jóhannes Kristinn, Erling Agnars og Þorra Ingólfs á lán. Þremenningarnir voru í tiltölulega litlu hlutverki hjá Víkingum og eflaust lítið
Þrátt fyrir styrkingar gluggans er óhætt að segja að lið Víkings sem kom inn í mótið er sterkara en núverandi lið Víkinga. Þar sem ekki er hægt að draga liðið niður fyrir meiðsli fær liðið sex í einkunn. Brotthvarf Gunnars Vatnhamar vegur þar þungt en félagaskiptin hafa þó ekki verið staðfest.
Komnir
Hrannar Snær Magnússon frá Kristiansund í Noregi
Ögmundur Kristinsson frá Val
Sveinn Margeir Hauksson frá KA úr láni
Sveinn Aron Guðjohnsen frá Cavese á Ítalíu
Sölvi Stefánsson frá Danmörku
Farnir
Jóhannes Kristinn Bjarnason í FH á láni
Erlingur Agnarsson í FH á láni
Þorri Ingólfsson í Þór á láni
Davíð Helgi Aronsson til Lyngby á láni (var á láni hjá Keflavík)
Búið að kaupa og kemur eftir tímabilið
Eiður Orri Ragnarsson frá Keflavík
KR - 7
KR-ingar misstu heldur betur lykilmenn út í sumarglugganum. Það var vitað að Alexander Rafn héldi út til Danmerkur en hann var í stóru hlutverki hjá Óskari Hrafni.
Þá var Amin Cosic seldur út til Viking Stavanger fyrir háa fjárhæð og rætt um að hann væri dýrasti leikmaður sem seldur hefur verið út frá Íslandi. Amin hafði verið í lykilhlutverki hjá KR og var meðal bestu manna deildarinnar. Galdur Guðmundsson hefur stigið verulega upp í fjarveru hans.
Þá losuðu KR-ingar Gyrði Hrafn og Birgi Stein út á lán og Guðmundur Andri fór til FH en þeir höfðu komið lítið við sögu.
Jason Daði kom inn frá Grimsby og er það ljós styrking. Hann var mikið frá vegna meiðsla á síðasta tímabili í Englandi og spilaði einungis níu leiki. Hann hefur komið við sögu með tveimur leikjum hjá KR og er enn að finna taktinn.
Sölvi Snær er ungur og spennandi hafsent. Fór út til LASK á láni fyrir um ári síðan en meiðsli hindruðu það að hann yrði keyptur til liðsins. Á enn eftir að spila en kaupin eru spennandi og horft til framtíðar.
Gunnar Örn Þórhallsson er ungur og spennandi markvörður sem mun þó eflaust ekki vera í rullu á tímabilinu.
Komnir
Jason Daði Svanþórsson frá Grimsby á Englandi
Gunnar Örn Þórhallsson
Sölvi Snær Ásgeirsson frá Grindavík
Farnir
Alexander Rafn Pálmason til Nordsjælland í Danmörku
Amin Cosic til Viking í Noregi
Guðmundur Andri Tryggvason til FH
Gyrðir Hrafn Guðbrandsson í Þór (á láni)
Birgir Steinn Styrmisson í HK (á láni)
Búið að selja og fer næsta sumar
Fannar Heimisson til Nordsjælland í Danmörku
Fram - 5
Misstu engann og sóttu einungis Óliver Elís sem lék með ÍR á láni frá Fram. Það fór sömuleiðis ekki mikið fyrir Frömurum í vetrarglugganum en styrkingarnar sem þeir fengu hafa allar gengið upp.
Leikmenn hafa vaxið undanförnum árum undir stjórn Rúnars Kristinssonar og því kannski óþarfi að fara mikinn á félagaskiptamarkaðinum.
Miðað við stöðu þeirra í deildinni hefði þó verið gaman að sjá liðið styrkja hópinn örlítið meira, þeir sleppa með fimm í einkunn.
Þeir reyndu við Hrannar Snæ Magnússon, sem er kominn í Víking, og Eysteinn Rúnarsson, ungan og efnilegan leikmann Grindavíkur.
Komnir
Óliver Elís Hlynsson frá ÍR úr láni
Farnir
Breiðablik - 6
Það sem vantaði í Blikaliðið var krydd fram á við. Kristófer Ingi hefur verið frá vegna meiðsla og voru margir sem settu spurningamerki við það að hann væri eina hreinræktaða nían komandi inn í tímabilið.
Þeir sóttu aðra níu í Þorleifi Úlfarssyni og vita nákvæmlega hvað þeir fá í honum. Þorleifur lék fimm leiki með Breiðabliki í fyrra en tókst þó ekki að skora.
Annar leikmaður sem þeir þekkja vel var jafnframt fenginn inn; uppaldni Blikinn Hlynur Freyr Karlsson. Hann kemur á láni frá Brommapojkarna en samningur hans þar rennur út um áramót og binda Blikar eflaust vonir um að fá hann varanlega þegar samningurinn rennur út.
Breiðablik var orðað við Danijel Dejan Djuric og hefði það verið áhugavert að sjá hvernig hann hefði komið inn í liðið. Sóknarleikur liðsins hefur verið flatur undanfarið og hefði hann getað litað liðið með sínum skemmtilegu litum.
Þá fór Arnór Gauti út til Króatíu og ungi markvörðurinn, Jón Sölvi Símonarson var seldur til ÍA. Engin sprengja en hópurinn styrktist þó og fá þeir því sex í einkunn.
Komnir
Þorleifur Úlfarsson frá Loudoun United í Bandaríkjunum
Hlynur Freyr Karlsson á láni frá Brommapojkarna í Svíþjóð
Farnir
Arnór Gauti Jónsson til Slaven Belupo í Króatíu
Jón Sölvi Símonarson í ÍA
Búið að selja og fer eftir tímabilið
Arnar Bjarki Gunnleifsson til Bröndby í Danmörku
Valur - 6
Valsmenn sóttu tvo leikmenn í glugganum; Þá Shkelzen og Tómas Bjarka. Tómas sleit krossband skömmu fyrir tímabil en hann kemur frá Njarðvík að tímabilinu loknu. Shkelzen hefur komið ferskur inn í liðið en þó ekki verið í lykilhlutverki.
Út úr hópnum fóru þeir Kristinn Freyr, Adam Ægir og Ögmundur. Kristinn spilaði ekki á tímabilinu vegna meiðsla, Adam Ægir eftir að hafa verið settur út í frystikistuna á Hlíðarenda. Ögmundur var í sömu kistu og fór til Víkings á undanþágu frá KSÍ.
Kaupin tvö eru spennandi en styrkja ekki liðið allsvakalega, ekki strax í hið minnsta. Sömuleiðis er mikið högg að missa Tryggva.
Komnir
Shkelzen Veseli frá Leikni
Farnir
Kristinn Freyr Sigurðsson í Aftureldingu
Adam Ægir Pálsson í KA
Ögmundur Kristinsson í Víking
Búinn að semja og fer líklega eftir tímabilið
Tryggvi Hrafn Haraldsson í ÍA
Búinn að semja og kemur eftir tímabilið
Tómas Bjarki Jónsson frá Njarðvík
Keflavík - 8
Keflvíkingar misstu einn sinn allra besta mann, Davíð Helga Aronsson, út til Danmerkur. Þeir höfðu lítið um það að segja þar sem hann er leikmaður Víkings og var á láni.
Þá fer Eiður Orri Ragnarsson til Víkings eftir tímabil. Liðið missti einnig Anton Kralj sem meiddist illa og menn sem voru í minni hlutverkum.
Þeir fylla í hans skarð með Mate Simisic, ungum varnarsinnuðum leikmanni frá Standard Liege, sem getur spilað sem hafsent og sem djúpur miðjumaður.
Ásamt honum fá þeir Elvis Bwomono sem þekkir deildina vel eftir að hafa leikið með ÍBV. Þá keyptu þeir jafnframt Alpha Conteh sem hafði verið frábær með liðinu fyrri hluta tímabils en hann var á láni frá Stjörnunni.
Þá sóttu þeir jafnframt Rafal Stefán Daníelsson sem nýjan varamarkvörð liðsins. Glugginn hjá Keflvíkingum sýndi að þeim er alvara og vilja byggja ofan á gott gengi liðsins
Komnir
Alpha Conteh keyptur frá Stjörnunni (var á láni)
Mate Simicic frá Belgíu
Elvis Bwomono frá Aberdeen
Rafal Stefán Daníelsson frá Haukum
Farnir
Davíð Helgi Aronsson á láni til Lyngby í Danmörku (var á láni frá Víkingi)
Anton Kralj
Halid Alghoul
Mirsad Basic
Guðjón Pétur Stefánsson í Leikni
Edon Osmani í Víði
Búið að selja og fer eftir tímabilið
Eiður Orri Ragnarsson til Víkings
Stjarnan - 6
Lítið hefur gengið hjá Stjörnumönnum á tímabilinu. Félaginu var spáð 3. sæti fyrir tímabil en eru í 8. sæti.
Félagið sótti tvo úr atvinnumennsku - þá Árna Vilhjálmsson og Ara Leifsson. Koma þeirra hefur þó ekki komið með þau áhrif sem þeir vonuðust eftir.
Liðið þurfti að styrkja varnarlínuna og má hrósa þeim fyrir að sækja Ara. Sama má kannski ekki segja um sóknarlínuna og eflaust einhverjir sem klóruðu sér í hausnum er þeir fengu Árna. Engu að síður mikil styrking að fá leikmann af hans gæðaflokki inn í hópinn.
Komnir
Árni Vilhjálmsson frá Al-Sahel í Sádi-Arabíu
Ari Leifsson frá Kolding í Danmörku
Christian Bjarmi Alexandersson frá Grindavík
Sigurður Gunnar Jónsson frá HK úr láni
Farnir
Bjarki Hrafn Garðarsson til Dortmund í Þýskalandi
Haukur Örn Brink á láni til Aftureldingar
Alpha Conteh seldur til Keflavíkur (var á láni)
ÍBV - 4
Eyjamenn eru í harðri fallbaráttu en sóttu þó enga klára styrkingu við liðið. Þeir Aron Vokes og Ivan Vidrih gengu í raðir félagsins en Aron kemur frá Selfossi í 2. deildinni og Vidrih verður nýr varamarkvörður liðsins.
Á móti fara Serbarnir tveir, Stuparevic og Jezdimirovic, sem gerðu lítið sem ekkert fyrir félagið. Zapytowski var farinn úr rammanum en fór út til Noregs og Arnar Breki var lánaður til Grindavíkur.
Eyjamenn eru kaldir að bæta engu við sig fyrir lokasprettinn og gæti það reynst ansi dýrkeypt þegar uppi er staðið.
Komnir
Ivan Vidrih frá Serbíu
Aron Lucas Vokes á láni frá Selfossi
Farnir
Marcel Zapytowski til Egersund í Noregi
Filip Stuparevic til Serbíu
Milan Jezdimirovic til Serbíu
Arnar Breki Gunnarsson í Grindavík (á láni)
ÍA - 5
Skagamenn blésu í herlúðra fyrir tímabil og sóttu stór nöfn. Sama er ekki upp á teningnum nú í sumarglugganum.
Félagið fékk hinn unga Jón Sölva Símonarson í markið á undanþágu frá KSÍ eftir að Árni Marinó meiddist. Þá kom Guðmar Gauti inn frá Fylki. Hann þykir mikið efni en hefur ekki komið við sögu á tímabilinu, hvorki hjá ÍA eða Fylki, vegna meiðsla.
Skagamenn vildu ólmir fá Tryggva Hrafn strax í glugganum en Valsmenn höfnuðu tilboðum ÍA. Ljóst er að hann komi aftur heim upp á Skaga eftir tímabil.
Engin flugeldasýning hjá Skagamönnum í þessum glugga og fá þeir fimm í einkunn.
Komnir
Guðmar Gauti Sævarsson frá Fylki
Jón Sölvi Símonarson frá Breiðabliki
Matthías Daði Gunnarsson frá Kára (var á láni)
Farnir
Búinn að semja og kemur eftir tímabilið
Tryggvi Hrafn Haraldsson frá Val
KA - 6
Gengi KA-manna hefur verið langt undir væntingum á tímabilinu og er liðið í harðri fallbaráttu.
Margir settu spurningamerki við skipti Adams Ægis Pálssonar sem kom frá Val. Þrátt fyrir að Adam sé flottur leikmaður var liðinu kannski betur borgið með að fá inn hreinræktaða níu. Einhverjir höfðu kallað eftir endurkomu Elfars Árna á meðan aðrir ræddu um Andra Rúnar Bjarnason.
Þá gerði liðið vel í að sækja Andre Römer frá Randers sem styrkir klárlega byrjunarliðið. Óskar Morales er spennandi varnarmaður en hann er fæddur árið 2007 og kemur frá Esbjerg í Danmörku aftur til uppeldisfélagsins.
Það er missir fyrir KA að Víkingur hafi kallað Svein Margeir Hauksson til baka úr láni. Þá var Danijel Dejan Djuric orðaður frá félaginu en hann heldur kyrru fyrir.
Komnir
Adam Ægir Pálsson frá Val
Andre Römer frá Randers í Danmörku
Bjarki Fannar Helgason frá Völsungi (var á láni)
Óskar Arnór Morales Einarsson frá Danmörku
Nicklas Cleemann Rulle frá KF (er markmannsþjálfari liðsins)
Farnir
Sveinn Margeir Hauksson í Víking (var á láni)
Breki Hólm Baldursson í HK (á láni)
FH - 8
Útlitið var svart hjá FH-ingum framan af tímabili og er það kannski enn, en félaginu hefur tekist að rétta skútuna við og liðið neitar að tapa leikjum um þessar mundir. Liðið er komið úr fallsæti og er í 10. sæti deildarinnar.
Varnarleikur liðsins hefur batnað til muna og þá sér í lagi eftir komu Olivers Stefánssonar. Í þeim fjórum leikjum sem hann hefur spilað hefur félagið einungis fengið á sig eitt mark. Jóhannes Kristinn Bjarnason er annar leikmaður sem hefur komið vel inn.
Þá fékk liðið sömuleiðis Guðmund Andra Tryggvason frá KR sem hefur ekki komið inn með jafn miklum krafti en býr yfir miklum hæfileikum.
Fimleikafélagið sótti þá óvænt Bastian Anderson, sem er tvítugur danskur framherji, og er hann hugsaður til framtíðar. Erlingur Agnarsson kom jafnframt að láni og er félagið með möguleika að kaupa hann að láninu loknu.
Stóru tíðindin voru kannski þau að Kjartan Kári Halldórsson heldur kyrru fyrir í Hafnarfirði en FH hafði samþykkt tilboð Víkings í leikmanninn.
Eins og var vitað fór Úlfur Ágúst aftur út til Bandaríkjanna í nám og Viktor Nói var sendur til Njarðvíkur að láni.
Komnir
Guðmundur Andri Tryggvason frá KR
Oliver Stefánsson frá GKS Tychy í Póllandi
Jóhannes Kristinn Bjarnason á láni frá Víkingi
Erlingur Agnarsson á láni frá Víkingi
Bastian Anderson frá Danmörku
Farnir
Viktor Nói Viðarsson til Njarðvíkur á láni
Úlfur Ágúst Björnsson til Bandaríkjanna (snýr aftur á næsta tímabili)
Þór - 9
Frá því að glugginn opnaði hafa Þórsarar sótt sjö stig en liðið er alls með fimmtán stig.
Koma Gyrðis Hrafns hefur reynst gulls ígildi og Aron Einar kom vel inn í þeim eina leik sem hann spilaði.
Þá fékk félagið spænska framherjann Victor Bertomeu sem á eftir að sýna sig betur. Kevin Vazquez er annar Spánverji sem var fenginn en hann á yfir sextíu leiki í LaLiga.
Fall virtist vera óumflýjanleg örlög Þórsara fyrir gluggann en nú er útlitið aðeins bjartara. Sigurður Höskuldsson og lærisveinar hans eiga þó enn vandasamt verk fyrir höndum sér.
Komnir
Victor Bertomeu frá Kerala Blasters í Indlandi
Gyrðir Hrafn Guðbrandsson á láni frá KR
Þorri Ingólfsson á láni frá Víkingi R.
Kevin Vazquez frá Sporting Gijon á Spáni
Haraldur Ágúst Brynjarsson frá Víkingi (var á láni í Njarðvík)
Farnir
Sebastian Haugland til Noregs
Elvar Baldvinsson til Völsungs
Ingimar Arnar Kristjánsson til Århus Fremad í Danmörku
Kominn og Farinn
Aron Einar Gunnarsson frá og til Katar

Sveinn Aron var tilkynntur sem nýr leikmaður Víkings í vikunni.

Mynd: Víkingur

Spilaði sinn fyrsta leik fyrir Víking um síðustu helgi.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Vatnhamar er á förum frá Víkingi.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Sölvi Stefánsson er efnilegur hafsent.

Mynd: AGF

Amin var seldur til Viking Stavanger.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Alexander Rafn fór til Nordsjælland.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Sölvi Snær var keyptur frá Grindavík.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Framarar sótt lítið en sótt rétt.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kallaður til baka úr láni frá ÍR.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Samningur Hlyns við Brommapojkarna rennur út um áramótin.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mættur aftur í Blika.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Farinn til Króatíu.

Mynd: Slaven Belupo

Keyptur frá Leikni.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Var frábær með Keflvíkingum.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mate er spennandi leikmaður.

Mynd: Standard Liege

Elvis.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Keyptur frá Stjörnunni.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Árni kom frá Sádí.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ari Leifsson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Aron Lucas Vokes.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Eyjamenn styrktu liðið lítið.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

ÍA keypti Jón Sölva á undanþágu frá KSÍ.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Gengur til liðs við Skagamenn eftir tímabil.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Adam Ægir var keyptur til KA.

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Andre Römer, yngri bróðir Marcel Römer.

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Oliver Stefánsson hefur komið frábærlega inn í lið FH.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Á láni frá Víkingi.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Heldur kyrru fyrir í Hafnarfirði.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Reynst Þórsurum vel.

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Vazquez er með góða ferilskrá.

Mynd: Akureyri.net/Ármann Hinrik

Þorri Ingólfsson.

Mynd: Akureyri.net/Ármann Hinrik
