Fotbolti.net
13.08.26 - 09:38
Elvar Geir Magnússon

Ekki ánægður en samt stoltur

Unai Emery stoltur af sínu liði.

Unai Emery stoltur af sínu liði.

Canon

Mynd: EPA

Paris Saint-Germain vann Aston Villa 2-1 í leiknum um Ofurbikar Evrópu í gær. Brian Madjo jafnaði leikinn fyrir Villa eftir að Khvicha Kvaratskhelia hafði komið franska stórliðinu yfir. Desire Doue skoraði svo sigurmarkið í seinni hálfleik.
Ofurbikar Evrópu: PSG vann annað árið í röð
TENGT EFNI

Ofurbikar Evrópu: PSG vann annað árið í röð

„Maður er aldrei ánægður þegar maður tapar. En hvernig við börðumst, hvernig leikmennirnir lögðu sig fram í 90 mínútur og sköpuðu færi til að skora þá verðum við að vera mjög stoltir af því sem við gerðum í þessum leik," segir Unai Emery, stjóri Aston Villa.

Táningarnir Madjo og George Hemmings stóðu sig vel og Emery segir að leikur sem þessi sé gríðarlega mikilvægur fyrir framþróun þeirra.

„Reynslan sem þeir öðlast með því að spila svona leiki er mjög mikilvæg. Þeir sýndu hvað þeir eru að læra eftir að hafa lagt mikið á sig."

Emiliano Martínez, Ezri Konsa og Ollie Watkins ferðuðust ekki með til Salzburg þar sem leikurinn fór fram. Þeir voru allir með á HM landsliða í sumar.

„Þeir koma til móts við hópinn eftir þennan leik. Síðasti æfingaleikur okkar er á laugardag. Við vildum gefa þeim fjórar vikur í frí því það er krefjandi tímabil framundan," segir Emery og ýjaði svo að því að Villa myndi bæta við leikmannahóp sinn áður en sumarglugganum verður lokað.
Ekki ánægður en samt stoltur
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.