13.08.26 - 18:45
Brynjar Ingi Erluson
Faðir Mac Allister: Hann verður áfram hjá Liverpool

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Argentínski miðjumaðurinn Alexis Mac Allister er ekki á förum frá Liverpool en þetta staðfesti faðir hans í dag.
Mac Allister hefur verið orðaður við bæði Manchester City og Real Madrid undanfarnar vikur.
Það virðist þó enginn möguleiki á að hann yfirgefi Liverpool í þessum glugga.
„Alexis verður áfram hjá Liverpool. Við höfum ekki einu sinni rætt möguleikann á því að hann fari frá félaginu í sumar,“ sagði Carlos, faðir leikmannsins, við blaðamanninn Ismael Mahmoud.
Mac Allister gekk til liðs við Liverpool frá Brighton árið 2023 og gegndi mikilvægu hlutverki þegar liðið varð Englandsmeistari á síðasta ári.
Hann náði ekki að fylgja þeirri frammistöðu eftir á síðustu leiktíð og var lengst af skugginn af sjálfum sér.