Stökk á tækifærið að hjálpa uppeldisfélaginu - „Þurfti ekki að hugsa mig tvisvar um"

Mættur aftur í grænt.

Mynd: 640.is - Hafþór Hreiðarsson

Eiður Ben og Siggi Höskulds.

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Það er mjög góður andi í hópnum og ef ákefðin og orkan er til staðar i leikjum hjá okkur þá getum við tekið stig af öllum liðunum sem við eigum eftir að spila við í deildinni

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Elvar kom við sögu í fimm leikjum með Þór.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Úr leik með Völsungi á síðasta tímabili.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Mættur aftur í grænt.

Mynd: 640.is - Hafþór Hreiðarsson

Hann fór beint í liðið hjá Völsungi sem er í harðri fallbaráttu og hefur liðið fengið sex stig af níu mögulegum úr síðustu þremur leikjum. Völsungur sigraði Grindavík og HK á heimavelli en tapaði gegn Fylki á útivelli.
Völsungar eru á leið til Þorlákshafnar og mæta þar Ægi í uppgjöri botnliðanna í kvöld. Fótbolti.net heyrði í Elvari á leiðinni suður.
„Þetta gerðist allt mjög fljótt, ég tók bara gott spjall við Sigga og Eið Ben (þjálfara Þórs) og niðurstaðan varð bara sú að ég ákvað að skipta yfir og taka lokasprettinn með Völsungi og reyna hjálpa þeim eins mikið og ég get. Ég var að fá lítinn spiltíma hjá Þór og er með mikið traust hjá Völsungi þannig ég þurfti ekki að hugsa mig tvisvar um," segir varnarmaðurinn
Þór á heima í deild þeirra bestu
Hvernig var að vera hluti af leikmannahópi Þórs fyrri hluta tímabils?
„Það er alltaf gott að vera hluti af Þórsliðinu, rosa þéttur hópur og alltaf gaman þótt gengið sé ekki frábært. Mér fannst andinn aldrei detta niður þótt við vorum ekki að sækja úrslit og það eru gæði og ákæfð á æfingum sem mun skila sér inn á völlinn," segir Elvar ákveðinn. Hann var einnig hjá Þór á árunum 2020-22.
„Síðustu leikir hafa verið flottir og hef fulla trú á að Siggi, Eiður og leikmenn klári þetta verkefni! Þór á heima í deild þeirra bestu."
Allir leikir úrslitaleikir
Tveir sigrar eftir að þú komst, hvernig er að vera mættur aftur?
„Bara gott að vera mættur aftur, byrjar þokkalega vel en það er ennþá langt í land. Hver leikur er úrslitaleikur og við þurfum að ná úrslitum í öllum leikjunum sem eftir eru. Mér fannst við sýna það sérstaklega í Mærudagsleiknum að við erum með flott lið sem getur spilað flottan fótbolta og keppt við öll liðin í þessari deild."
Hvernig var stemningin á Mærudögum gegn Grindavík?
„Alltaf gaman að spila á Mærudögum og alltaf rosaleg stemming!"
Endurkomusigur sem jók trúna
Sigurinn gegn HK um helgina, jókst trúin á verkefnið eftir þann leik?
„Já hún jókst heldur betur, var líka ekki verra að þetta hafi verið endurkomusigur eftir að hafa lent 1-2 undir um miðjan seinni hálfleik."
Þéttir og nýta færin
Þrjú og fimm stig upp í næstu lið, hvernig horfir framhaldið við þér?
„Bara hrikalega vel, það er mjög góður andi í hópnum og ef ákefðin og orkan er til staðar i leikjum hjá okkur þá getum við tekið stig af öllum liðunum sem við eigum eftir að spila við í deildinni."
Hvað þurfið þið að gera til að vinna Ægi í kvöld?
„Bara gamla góða að vera vel þéttir í varnarleiknum og nýta færin sem við fáum. Þeir eru með leikmenn sem geta sært okkur og við þurfum að vera með einbeitinguna í lagi í 90 mínútur og orkan þarf að vera til staðar," segir Elvar.
Leikirnir sem Völsungur á eftir
fimmtudagur 13. ágúst
18:00 Ægir-Völsungur (GeoSalmo völlurinn)
mánudagur 17. ágúst
18:00 Völsungur-Vestri (GPG völlurinn)
laugardagur 22. ágúst
16:00 Njarðvík-Völsungur (JBÓ völlurinn)
laugardagur 29. ágúst
16:00 Völsungur-ÍR (GPG völlurinn)
laugardagur 5. september
14:00 Grótta-Völsungur (Vivaldivöllurinn)

Eiður Ben og Siggi Höskulds.

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Það er mjög góður andi í hópnum og ef ákefðin og orkan er til staðar i leikjum hjá okkur þá getum við tekið stig af öllum liðunum sem við eigum eftir að spila við í deildinni

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Elvar kom við sögu í fimm leikjum með Þór.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Úr leik með Völsungi á síðasta tímabili.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Stöðutafla
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Afturelding | 16 | +22 | 34 |
| 2 | Þróttur R. | 17 | +20 | 34 |
| 3 | Fylkir | 17 | +9 | 33 |
| 4 | Njarðvík | 17 | +5 | 29 |
| 5 | HK | 17 | +8 | 28 |
| 6 | Grótta | 16 | +4 | 26 |
| 7 | Leiknir R. | 17 | -2 | 22 |
| 8 | Vestri | 17 | -10 | 21 |
| 9 | ÍR | 17 | -8 | 19 |
| 10 | Grindavík | 17 | -7 | 17 |
| 11 | Völsungur | 17 | -16 | 14 |
| 12 | Ægir | 17 | -25 | 8 |
